Koddu nú að kveðast á.
Eins vel og þú getur.
Jesús minn og Jóhannes,
Jósef og Pétur.
Komdu nú að kveðast á.
Kappinn ljóðagranni
Braga gamla bregður smá.
Bannsettur kvæðaglanni.
Koddinn er að kveðast á
við krumpað sængurverið.
Lakið kvartar: Leitt að sjá
hve ljóta bletti gerið.
Komdu nú að kveðast á
eins vel og þú getur.
Látum ganga ljóðaskrá
sem ljós í allan vetur
.
Komdu nú að kveðast á
kjempann ljóða snjalla.
Komdu nú að kveðast á
kjempann ljóða snjalla.
Lúðvík ljóti datt í Á
Leitt fyrir þá sem bralla
Komdu nú að kveðast á
kjempann ljóða snjalla.
vísum þeytum þétt á skjá
þar má bögur malla
Baggalútur, Björn og Geir
Bjólfur Gvendur Gunnar....
Raggi, Siggi, Sveinn & Freyr
Sæmi, Nonni, Unnar
Komdu nú að kveðast á
kappinn ef þú getur.
Og það er ekki að efa þá
að eg hafi betur!
Birgir Braga
Ba<ggalútur, Björn og Geir,
Bjólfur Gvendur Gunnar,
Gestur Einar einn og tveir
Eiður, Vestar, Sunnar.
--------------------------------
- Komdu nú að kveðast á
en kvergi vertu hræddur.
Hvð er það sem allir þrá?
Að vera gáfum, gæddur.
Farðu nú að fljúgast á
fíflið þitt og bleyða.
Ég mun kjaftshögg kjammann á
kýla þig og deyða.
Komdu nú að kveðast á.
Hvinnski brellni þjófur.
Láttu ganga ljóðaskrá.
Lambakjöt og rófur
Komdu þér út og kveddu nú
kappinn ef þú getur
Líkar mér betur ljóðafrú
að leika mér við í vetur.
Lyktar eins og líkhús hér,
laevís nasasúldin,
velgju thetta veldur mér,
thví veggurinn er úldinn.
Komdu þér af kamrinum út
kvæðasmiðurinn hagi.
Áður en þú verður kveðinn í kút
af klósettbandalagi.
Komdu nú að kveðast á.
Köld er bláa höndin.
Lét hann lemja mig og slá.
Langann brúkar vöndinn.
Komdu hingað kvæðadrós!
Kallar þig ljóðadraugur.
Nú eru horfin Norðurljós
nú er aðeins Baugur.