OK. Hér er spurt um orð:
Fyrrum stolið frá oss var.
Frábær skapar hljóðin.
Sum á skjótum, sum í mar.
Sum þau grætur þjóðin.
Hetja dagsins er hundurinn sem fannst á lífi eftir snjóflóðið á Bakka í Ólafsfirði. En mér segir samt hugur að hann muni nú ekki fá fálkaorðuna þótt hann hafi drýgt mun meiri dáð en einhverjir skrifstofustjórar og burokratar. Og það verði reynt að afsaka það með tæknilegu smáatriði eins og því að hann sé hundur en ekki maður. .
Eftir andvöku nótt yfir þessu, dettur mér ekkert gáfulegra í hug en hvalir. Sofnar fram á lyklaborðið...y5rahuzifæbvkjwan980pt 2fbvszknl c,
Fyrrum stolið frá oss var.
Frábær skapar hljóðin.
Sum á skjótum, sum í mar.
Sum þau grætur þjóðin.
Handritin eru það fyrsta sem kemur upp í huga minn
Fyrrum stolið frá oss var --> Danir stálu þeim
Frábær skapa hljóðin --> hér stend ég reyndar á gati
Sum á skjótum, sum í mar --> sukku ekki einhver handrit í sæ?
Sum þau grætur þjóðin --> þjóðin grætur þau handrit sem sukku...
þakka þér, þetta hljómar nú allt voða kunnuglega og ætti að koma ef ég leggst undir feld. Annars er þetta Nykurinn hérna með miðin. Eftir tilraunir mínar með blöndun frekknótts kóbalts við hást Elipton þá virðist sem ég hafi horfið inní aðra vídd og veit ei hvort ég á afturkvæmt héðan, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum get ég þó birst hér sem gestur.
Baggalútíu allt!
Eru þetta nokkuð lúður?
Lómur??
Fyrrum stolið frá oss var.----veit ekki
Frábær skapar hljóðin. ----ég hef allavega gaman af lómasöng á fögrum sumarsíðkvöldum
Sum á skjótum, sum í mar. ---líklega ólöglegt að skjóta, en held að þeir séu stundum á sjó
Sum þau grætur þjóðin.----berja lóminn, það hefur svipaða merkingu held ég..