Tæmdust glös við taumlaust fjör
en töluvert það frat er
að höfgin varð að heljarför
Ich habe einen Kater.
Drykkinn núna þyrstur þyldi
og þarf ég nú að liggj' á bæn
Maður eitt þó mest ég vildi
Ich möchte eine Flasche Wein
Ef dánarmein er drápsmanns brot
Derrick mætir eins og skot
íbygginn með aungagot:
Es ist klar, der mann ist tot!
það er erftitt þetta streð
og þýsku fikt
vildi hafa vísu með
weiss ich nicht
Kynóð þegar kemst í vín
konan mín er.
Því er gæfa og gleði mín
Gewurtstraminer.
Fer á brott nú fljóð ein sæt
frekar hart
Þín ég sakna, glatt því græt,
gute Fahrt
Einstein eitt sinn sagði
og á það vikt
gamla og góða lagði:
Gott würfelt nicht.
Einn böðull lágt sig lagði
í líma fyrir stert.
Sjálfur þá ég sagði:
Ich sah, was passierte.
Ég margar tungur mæli af list.
Þær mætavel ég kann.
„Wenn mein Kügelschreiber kaputt ist
was kann ich schreiben dann?“
Viltu með mér, vina mín,
vappa niðrí bæ?
Og halda síðan heim til mín,
eller hjem til dig
Að vörum sér vínflösku lagðann
valt síðan út.
Um morgunin sárþunnur sagðann.
Son alles gut?
Raunaleg streymir hún Rín,
rök eins og skjólfötin mín.
Wissen Sie was ich meine?
Hún silast með sull sitt hjá Bonn,
á sekúndu mörg þúsund tonn.
Ég hef þetta eftir Heine.
Eitt sinn kall ref kellingu
kom þar fyrir rass
Í illa innrættri stellingu
ich vind das viel spaß
Er að sumbli sat og kvað,
ég sá mig skorti þol.
og furðu hratt allt fór af stað,
ich fühle mich nicht wohl.
Hæ öllsömul!
Veifar á þessu nýja ofurlaumupúkasvæði sem enginn mun nokkurtíman finna {25.9.2005 02:18}
Hæ. Er ég þá enginn fyrst ég fann þetta?
?
Þar sem eitt sinn eg var stödd
oní jörð, í ferðadýri
aftur heyrði óma rödd:
Уважаемые пассажиры!
Mín kæra frystikista
sem kannt svo vel að frysta:
Æ, vilt'ekki fyrir mig vista
водка, пожалуйста.