Ég sakna einnar dömu, sem ég aldrei fæ
ég syrgi hana Dóru, unz dauðastund ég næ.
Drósin sú a’ tarna
daðrar nú við Bjarna
Det var på Frederiksberg, det var i maj.
“Einveran ekkert grín er,”
einmana söng eitt vínber.
Ég ærist ef ástkona mín ferIch bin ein Berliner
Ég var fullur eins og svín
allt of mikið drakk ég vín.
Orkti loksins óð til þín:
Ach du lieber Augustin
Skap mitt þykir oft þvers, en
þá er ég heldur ei hvers, en
Deutschland dáir mitt vers, en
Du du liegst mir am Herzen
armböndin lagleg ljæ
lestina hata æ
kíki á klúran bæ
die Kriminalpolizei
Fullur Stefán stúdent klúr
með standpínu á drykkjutúr.
gambraflösku gleypir úr:Gaudeamus igitur
Maddömuna ljúfa læt
ég leika við mig unz ég græt.
En hennar fæða er ekki æt!O alte Burschenherrlichkeit
Mikið dag hvern drekka vín,
í drykkju eiga met.
Danir eru djöfuls svín,
deres Majestæt.
Gekk ég yfir kaldan eyðisand
illa leikinn eftir hjónaband.
Syrgi ég nú sjúss og klaka og bland.Schleswig-Holstein ist mein Vaterland
Frá Þýzkalandi það ég man
er þokkadís mig viljugan
elskaði - hvorki of né vanAuf der Reeperbahn
Ég að öllum háska hlæ
heljarskuði jafnan næ
Ef ég reyni, oftast fæAller guten Dinge sind drei.
Hérna í Laugardalslaugum
ljúft er að halda í spa.
Fráleitt er farinn á taugum
Funiculli Funiculla!
Valdapakkið ráðskast, ríkt
réttlæti þess er engu líkt.
Ráðið bezt er, bræður, slíkt:Bellende Hunde beißen nicht.
Þegar fer með frúm
að rekkju, upp í rúm.
oft hugsa er fellur húm
coito ergo sum
Ef að franskt ég fæ nú kvon-
fang þá er mín æðsta von
að leikum okkur lon og don
sur le pond de Avignon
Margt er skrítið á þýsku, því
þeir fólk of nefna "leuten".
Sögnin kemur svo aftan í
Ich weiss nicht was soll es bedeuten.
Hann var oft í svalli og þjóri.
Og í maga hans lítrar af bjóri.
Loks hann féll oní sjó.
Saup á stórum og spjó.
Og tautaði: "Memento mori".
Þeir eltu hann á átta hófa hreinum – ekkert mál
En Skúli sat á Sörla sínum einum – var við skál.
Einem geschenkten Gaul -
schaut man nicht ins Maul
Eðla ungfrú berum
okkur, dodo gerum
O, jerum, jerum, jerum.
O, que mutatio rerum.
Litla frú Lauritzen
er lasin og með slen
Lúrir hjá Lalla BenLili Marlene