Jafnframt leggjum vér til að ráðherrabústaðahöllin verði stækkuð tífalt, hún er svo glæsilegt að vér viljum ólmir sjá tífalt meira af slíku.
Stækkun Ráðherrabústaðsins er á teikniborðinu og mun bústaðurinn stækka til austurs "viðræður" eru við íbúa Hveragerðis að flytja til Selfoss. Jarðýtur hafa nú þegar rutt flestum byggingum Hveragerðis úr vegi nema Eden en ætlunin er sú bygging verði hluti af "sólstofu" Sverfilss Bergman en Ölís verður með skrifstofur í austasta hluta bústaðsins.
Hérmeð óska ég eftir fjárveitingu frá Fjármálaráðuneytinu til að byggja upp Tívolí þar sem gamla Tívolið í Hveragerði stóð áður. Ég mæli um að það skuli vera útbúið öllum nýjustu og bestu tækjum sem heimsbyggðin hefur upp á að bjóða.
Einnig krefst ég þess að þar verði stórt útibú frá Vínverslunum ríkisins, þetta útibú skal hafa þau aldurstakmörk á sölu að það verði miðað við fermingu.
Þó skulu Fm-Hnakkar vera bannaðir í öll tæki nema ofur-þeyti-vinduna, þar sem þeir mega æla hver á annan eins og þeir vilja.
-
Limbri, við ættum þess í stað að ráðast að rót vandans og leggja FM 95.7 niður.
Bíddu nú við... er ekki búið að því ennþá ?
Hvaða slugsaháttur er þetta. Svona sendið hundana inn, 80-120 stk. takk.
-
Hvernig er það? Er ekki þá líka hægt að setja glerkúpul yfir höfuðborgina? Mig hefur alltaf langað til að eiga heima í borg undir glerkúpli. Þá kemur heldur ekkert að sök þegar við sökkvum loks í kaf vegna gróðurhúsaáhrifa. Þá mun einmitt koma sér vel að vera með alla kafbátana.
Vér leggjum til að hluti höfuðborgarinnar verði strax frá upphafi undir sjávarmáli.
Hvernig væri að byggja neðanjarðarborg undir Hveravöllum? Og grafa svo göng til allra átta í e.k. stjörnumynstri? Landið er svo illa nýtt með núverandi skipulagi.
Já, við eigum að hugsa rúmfræðilega en ekki flatarmálslega. Gröfum okkur í jörð og einangrum okkur frá umheiminum.
Þetta allt saman ætti að vera auðvelt þar sem landgrunnur Baggalútíu er svo laus í sér. Kannski að nota megi elipton?
Já auðvitað notum við allskonar sprengiefni til að grafa okkur í jörð. Jarðskjálftamælar ættu að sýna ýmislegt skemmtilegt. Ef einhver spyr þá erum við bara að gera kjarnorkutilraunir.
Mér finnst nú nokkuð hart að flytja alla Hvergerðinga, þeir eru flestir sannfærðir Bagglýtingar.
Hámarks ónytsemi fyrir sem flesta er markmiðið.
Þetta allt saman ætti að vera auðvelt þar sem landgrunnur Baggalútíu er svo laus í sér. Kannski að nota megi elipton?
Það kann að vera, hvaða stað á landgrunninu höfðuð þér hugsað yður ?
Mér finnst nú nokkuð hart að flytja alla Hvergerðinga, þeir eru flestir sannfærðir Bagglýtingar.
Það gerir þá bara meðfærilegri.
Vér höfum gert tilraunastæði fyrir höfuðborgina þar sem Kolbeinsey var og notuðum við það elipton með góðun árangri.
Það barst Nykri til eyrna að stofnun ungmennahreyfingar andspyrnunar sé á næsta leyti og að Grimmis sé sjálfskipaður ungliðaleiðtogi þessarar hreyfingar. Hér má sjá þráð þar sem allar gelgjurnar frá huga.is eru samankomnar að ræða einhvern fisk sem heitir Njörður.
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1679&start=0&postdays=0&postorder=asc&highlight=
En talið er að um prímatívt dulmál sé um að ræða og í raun heiti hreyfingin Njörður. Þarna er stjórnarandstaðan greinilega að nýta sér það ófremdarástand sem er að skapast með ólöglegum innflytjendum frá huga.is og koma þeim í sínar raðir. Sérlegur fulltrúi Jarfi var á fundinu að undirlagi forsætisráðuneytisins.
það verður að grípa til róttækra og jafnframt sérlega fólskulegra aðgerða sem allra fyrst, svo að meinvörp sem þessi nái ekki fótfestu í okkar útíópíska ríki.