hví eru allir hættir að tjá sig á þessum þræði, mér virðist þetta fyrirmyndarþráður og allskostar ótímabært að segja skilið við hann!
Skarplega athugað Glúmur sæll, þessi þráður er til fyrirmyndar... Ljómar upp
Ég legg þá til að þessi þráður verði hinn al-leynilegi þráður laumupúka hér á spjallborðinu!
aaahhhh, langt síðan ég las þennan þráð síðast...þrælgóð hugmynd hjá ykkur glóir eins og ljósapera
Hafa laumupúkar einhverjar fréttir af hinni alræmdu 2000-ustu frétt? Fer ekki að líða að henni?
Ég hef ekkert frétt, líklega er bara svo lítið fréttnæmt þessar stundir að frétt 2000 er enn ekki búin að gerast.
Ég er nú engin spákona en tel líklegt 2000 fréttin gerist á morgun kl 14:37. Gæti þó liðið nokkur stund þar til að atburðurinn kemst í fréttirnar.
Ég er nú engin spákona en tel líklegt 2000 fréttin gerist á morgun kl 14:37. Gæti þó liðið nokkur stund þar til að atburðurinn kemst í fréttirnar.
Þar sem þetta er netmiðill og á tímum stafrænna myndavéla, þá má reikna með að það taki um 24 mín að skrásetja atburðinn svo vel sé (plús-mínus 4 mínútur), semsagt, giska á að klukkan 15:01 ætti fréttin að birtast.
Vjer höfum hjer með uppgötvað þessar stórmerku umræður og erum þar með orðnir laumupúki líka svo og velkomið lamb. Annars þykir oss það einkennilegt mjög að nýjustu umræður skuli eigi birtast efst.
Það virðist vera nokkuð ljóst að ritstjórn Baggalúts veit ekki enn af laumupúkun okkar á þessum þræði, alltént virðist hún gjörsamlega hafa farið á mis við þennan spádóm um komu 2000-ustu fréttarinnar.
Einmitt. Stórfurðulegt, maður hefði getað haldið að hér þyrfti að leiðrétta vegna tímamismun milli landa, en Hrafnista er víst á sama tímabelti og Ísland.
Eigi munum vjer furðulegir vera heldur munu allir aðrir furðulegir vera, Enter þar með talinn.
Einmitt. Stórfurðulegt, maður hefði getað haldið að hér þyrfti að leiðrétta vegna tímamismun milli landa, en Hrafnista er víst á sama tímabelti og Ísland.
Má vera en er baggalútsvefurinn ekki hýstur erlendis?
Efnisinnihald þessa skeytis er sama og ekkert enda tilgangurinn eingöngu að halda lífi í þessum umræðuþræði laumupúka og fá e.t.v. vísbendingar um hversu margir vita af þeim merku umræðum er hjer fara fram.
nei sko, þið eruð ennþá hér ! Gefur frá sér vellíðunarstunu