Hvernig er það með ykkur afturkreistingana? Horfiði mikið á hin eðalfína Bottom sem BBC sýndi hér áður fyrr? Það var þáttur í lagi.
Vér mótmælum því harðlega að vér eða aðrir Gestapóar séu afturkreistingar. Jafnframt upplýsist hér með að vér horfum eigi á Hitler & co af þeirri augljósu ástæðu að eigi er svo oss sé kunnugt verið að sýna umrædda þætti.
Vér mótmælum því harðlega að vér eða aðrir Gestapóar séu afturkreistingar. Jafnframt upplýsist hér með að vér horfum eigi á Hitler & co af þeirri augljósu ástæðu að eigi er svo oss sé kunnugt verið að sýna umrædda þætti.
Ég segji bara eins og Sigga Bein..... Ég er sammála.
Ég hefði samt ekkert á móti því að þeir verði teknir aftur til sýninga. Ofbeldisfullur anarkistahúmor þeirra var oft á tíðum afar skemmtilegur, á sinn groddalega hátt.
Ætli þetta sé hann Tony, snúinn aftur?
Ætli þetta sé hann Tony, snúinn aftur?
Ekki nefna nafn hans hér!
...Það boðar illt.
Hver er þetta sem ekki má nebbna?
Horfir stóreygur á sér reyndari menn og sýgur upp í nefið
Við viljum helst ekki tala um það...þetta tilheyrir dökkri fortíð Baggalúts...
Tekur fram andasæringaverkfærin og býst við því versta...
Já í guðana bænum ekki nefna ófreskjuna á nafn, ég vil ekki þurfa að skammast mín meira en komið er.
-
réttir út viskípelann Drekkum til að gleyma strákar....
Takk, skál kallarnir mínir. Skál fyrir... skál fyrir... skál fyrir betri tímum, tímum lausum við ófreskjur og forynjur. Skál fyrir framtíð án skömmustu-tilfinningar.
-
Vel sagt.... Brestur í óstöðvandi grát Sniff, sniff fær sér sopa, sýgur í nef og brestur aftur í óstöðvandi grát.
Myndaflokkurinn The Bottom var allgjer snilld, þar voru þeir Eddie og Richie mjög fyndnir.
Myndaflokkurinn The Bottom var allgjer snilld, þar voru þeir Eddie og Richie mjög fyndnir.
Þátturinn hét Bottom, ekki the bottom.
Ég mæli með því að allir þeir sem lesa Baggalútinn á vefnum ættu að nýta nú nettengingarnar í eitthvað nytsamlegt, t.d. að leita upp Bottom þættina enda eru þeir hin besta skemmtun. Þeir sem á prentútgáfuna af Baggalút eru ekki alveg jafn vel settir því bandvídd prentmiðla þykir ekki mikil.