Þessi partur ekki er
alveg samkvæmt bókinni.
Brá mér þá sem betur fer
barasta úr brókinni
Hundurinn sinni lyfti löpp
langaði að vökva ljósastaur.
.
Ofstuðlað er í botni og einnig nýja fyrripartinum auka'b' og auka'l' kv.Bar.P.
Má breyta; ?
Hundur sinni lyfti löpp
ljósastaurinn vökvar
Smáa bunan kær og knöpp
Kátur bara skrökvar.
Reyndar er vísan ágæt hjá J. Djamm, en fyrripartinn vantar. Auk þess slitnaði þráðurinn hér nokkru ofar, en síðasti ræðumaður skv. reglugerð var þessi:
Frá útvarpinu lítið lag
læðist að mínu eyra
Frá útvarpinu lítið lag
læðist að mínu eyra;
Helgi Pé með hásum brag
hæðist að Nínu & Geira.
--------------------------------------
Fyrripartinn vantar víst,
vanda skal hér kvæði
Takk fyrir!
Æjá! Fyrirgefðu mér á meðan ég er að átta mig á öllu hér!
Þinn fyrripartur er flottur.
Fyrripartinn vantar víst,
vanda skal hér kvæði
af því mikill háski hlýst
á hunda rennur æði´
Föstudagsins fyllerí
förðist kæru alkar
Föstudagsins fyllerí
förðist kæru alkar
Voðalegt að vita af því
hve Vímus ungur kalkar.
Áfengið sinn tekur toll
tugi held ég prósenta.
Áfengið sinn tekur toll
tugi held ég prósenta.
Feikir mörgum mönnum um koll,
metur bezt þó dósenta.
Flösku dagur fagur er
feiknarlega góður.
Flösku dagur fagur er
feiknarlega góður.
Í vesælt partí víst ég fer
og verð brátt trítilóður.
Ég mun drekka, drepast svo
dott'og síðan vakna.
Ég mun drekka, drepast svo
dott'og síðan vakna.
höfum það á hreinu sko
hér má ekkert slakna.
Herðum svallið hækkum ris
holdsins meðan tórum
Herðum svallið hækkum ris
holdsins meðan tórum.
Pussunum á punkti is
pjakka ég í fjórum.
Langt er síðan lafði hann
litla, ræfilstuskan.
Langt er síðan lafði hann
litla, ræfilstuskan.
langan harðan liminn fann
litla öskubuskan
Síðan engan friðinn fær
fákurinn í klofi
Raupa hér um rekkjubrögð
rækjutillar geldir
Í Irak voru felldir.
Rækjutilla rekkjubrögð
rannsakast í smásjá.
Raupa hér um rekkjubrögð
rækjutillar geldir
Í Irak voru felldir.
Rækjutilla rekkjubrögð
rannsakast í smásjá.
Rækjutilla rekkjubrögð
rannsakast í smásjá.
Stúlkan litla verður lögð,
liminn þráir að fá.
Heimtifrekja hertogans,
heimamönnum leiðist.
Heimtifrekja hertogans,
heimamönnum leiðist.
„Ég vil tópas, tertog krans
og tapírskálf - sem reiðist!“
Vakna snemma, voða hress
vind mér skjótt að kvæðasmíð
Vakna snemma, voða hress
vind mér skjótt að kvæðasmíð
Engin þynka, ekkert stress
Enter semur kvæðin fríð.
Laugardagur, geðið létt
lundin ósköp bjartsýn.
Laugardagur, létt er geð
lundin ósköp bjartsýn.
batteríin betur hleð
býsna lítil fart mín
Reynið nú að botna bræður
botnið, eða systur, þetta
Reynið nú að botna bræður,
botnið, eða systur, þetta,
fljót nú, botnið, feður, mæður,
frændsystkin til liðsins sétta.
Botnótt ær á beit um kvöld
býr sig til að hátta