— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 329, 330, 331 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 23/9/05 14:38

Nú skal könum sökkt í sæ
syndir fyrir gjalda
Telst nú slæmt í Texasbæ
að tjalda

Katrín virtist versta fól
vart er skárri Ríta

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 23/9/05 14:48

Katrín virtist versta fól
vart er skárri Ríta
Öslar um með org og gól
óvini að bíta.

Kókópuffs og kaplamjólk
kaupi fyrir veislu

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 23/9/05 14:51

Kókópuffs og kaplamjólk
kaupi fyrir veislu
enda haldin fyrir fólk
í fremur harðri neyslu

drullist nú á dansiball
dýrin mín stór og smá

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 23/9/05 15:08

drullist nú á dansiball
dýrin mín stór og smá

Grandrokk veitir gæðaskrall
gírinn í komumst þá.

Köntrísveitin kófsveittum
kyndir undir gestum

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 23/9/05 15:13

Köntrísveitin kófsveittum
kyndir undir gestum
með gleðisöngvum (glaðbeittum)
gúmmískóm og hestum

Þar mun ölið teygað; tjútt
og tregi ráða för

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 23/9/05 15:18

Þar mun ölið teygað; tjútt
og tregi ráða för


Grúpíur og gaurar sprútt
gleypa'og verða ör.

Ölir teitir fundi frá
feitum ríðið hesti

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 23/9/05 15:26

Ölir teitir fundi frá
feitum ríðið hesti
enda tekið aftan frá
með aðgangsrukkun gesti

samt, þá hvet ég ykkur öll:
asnist til að mæta!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/9/05 15:27

Ölir teitir fundi frá
feitum ríðið hesti
Held ei þessi hátið já
sé handa þessum gesti

Híma ég víst hlekkjum í
hér á Norðurlandi

of seinn...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/9/05 15:29

samt, þá hvet ég ykkur öll:
asnist til að mæta!
Heyrist þaðan hlátrasköll
hinum mun það kæta.

Ekki verður hátíð hér
herrar mínir.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 23/9/05 15:42

"Ekki verður hátíð hér
herrar mínir."
Vondur mælti vertinn þver
vottorð sýnir.

Bagga- langar -lúts á ball
langt er þó í burtu.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Enter 23/9/05 15:47

Bagga- langar -lúts á ball
langt er þó í burtu.
Æ góða þér nú skelltá skrall
(en skrepptu fyrst í sturtu)

Þarna verður hopp og hí
- herfilega gaman

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/9/05 15:52

Þarna verður hopp og hí
- herfilega gaman
farið nú á fyllerí
ferleg verðið saman

Í anda mun ég una mér
ykkur með minn kæri

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 23/9/05 15:53

Þarna verður hopp og hí
- herfilega gaman
Drukkið Víti, vangað, því
vinir koma saman.
(of sein)

Í anda mun ég una mér
ykkur með minn kæri.
Hlust'á diskinn, djamma hér
drekk og borða læri.

Tætið norður, Teri minn
tryllið sveitameyjar.

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 23/9/05 17:02

Tætið norður, Terri minn
tryllið sveitameyjar,
þar ku , mætast stálin stinn
skvýsur um allar eyjar.

Rævilsleg og reynnslulaus
reykar hún um stræti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 23/9/05 17:03

Tætið norður, Teri minn
tryllið sveitameyjar.
Yfir sprautið afganginn
æðislegu peyjar

Köntrí músík melódí
mestri alltaf unni

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Köntrí músík, melódí,
mestri alltaf unni,
en ekki leyfir Leoncie
sitt lag í útgáfunni.

--------------------
Komum við á köntrídjamm
frá Kópavogi, bæði

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 24/9/05 01:51

Komum við á köntrídjamm
frá Kópavogi, bæði.
Á eftir skal þér gefa gramm
af gæskuríku sæði.

Þegar nóttin úti' er öll
arkar sveinn um stræti.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Þegar nóttin úti' er öll
arkar sveinn um stræti.
Leitar útum víðan völl
að viðfangsefnisblæti.

-------------------------
Nóttin kemur, nóttin fer,
nýir dagar fæðast

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 329, 330, 331 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: