Í helvíti er heitt og gott
hresst þar mun að vera
hitabylgjur, hrundin flott
helst vill sig þá bera.
Ég held mig þá við jákvæðu nóturnar og segji aftur:
Ekki sýnist öllum gott,
ævina að þreyja
Í helvíti er heitt og gott
hresst mun þar að vera,
kölski í sinn stóra pott
sálirnar mun bera.
Gengur einn þar garpur snar
gaufandi ´á kveldinn,
-----------------------------
Ekki sýnist öllum gott
æfina að þreyja
brjósta góð og býsna flott
Barbie yngis meyja
-------------------------
Of seinn
Læt fyrripart standa,.
Gengur einn þar garpur snar
gaufandi ´á kveldinn,
hálfan daginn hékk á bar
heldur óviðfeldinn.
Mæti ég á mína vakt
mikið skal ég þjóra
Mæti ég á mína vagt
mikið skal ég þjóra,
og taka dömu í blárri dragt
drjólinn má ekkert slóra.
Góðrar nætur nú ég bíð
náð sé með oss öllum,
Góðrar nætur nú ég bíð
náð sé með oss öllum
Vonandi er Frúin fríð
og fagni öllum köllum
Ferðalag í friði geng
Fréttir engar berast
Ferðalag í friði geng.
Fréttir engar berast.
Spræni ei þó sé í spreng.
Spaugsamir menn gerast.
Fyrripartinn set ég saman
sannkallaða kvæðagildru.
Fyrripartinn set ég saman
sannkallaða kvæðagildru.
Einnig hef ég af því gaman
ef ég fæ að skjóta tildru.
Hægri stjórnin hrum og slöpp
held ég megi falla.
HÆGRI STJÓRNIN HRUM OG SLÖPP
HELD ÉG MEGI FALLA,
KARLINN KNÁI SKAKKALÖPP
KOMIN ER MEÐ SKALLA,.
OKKAR KJÖRIN ERU KRÖPP
KRÓNUR Í BUDDU VANTAR,
OKKAR KJÖRIN ERU KRÖPP
KRÓNUR Í BUDDU VANTAR,
SKRAMBANS, DJÖFULS, FJANDANS FÖKK!
FÁVÍSIR KVERÚLANTAR!
upphrópanir æsa mjög
öfgafylltar kenndir
upphrópanir æsa mjög
öfgafylltar kenndir.
Eru þeir við Þrændalög
þessu marki brenndir? (spyr bara)
Allt er hey í harðri tíð
hérna upp á Fróni.
Allt er hey í harðri tíð
hérna upp á Fróni.
Eyðijörðu einatt svíð
allt í fjárans tjóni.
Launin eru lúsarleg
lífið fram þó dreg ég.
Launin eru lúsarleg
lífið fram þó dreg ég.
Lít ég fram á vonarveg,
voðalega ertu treg!
Viltu ekki, vina mín,
Vatne ástar njóta?
Viltu ekki, vina mín,
Vatne ástar njóta?
hérna færðu fentazín
farðu svo að hrjóta.
Líður tíminn löturhægt
löng var nóttin þessi
Líður tíminn löturhægt
löng var nóttin þessi
Öldur hafa að oss lægt
Æ þig drottin blessi.
Morgunskíman mjakast inn
Máninn fölva tekur
Morgunskíman mjakast inn
Máninn fölva tekur
Ég þó hlýju enga finn
ennþá kári skekur
Blautt og kalt er bölvað slenið
bráðum leggst ég dvala í
Blautt og kalt er bölvað slenið
bráðum leggst ég dvala í.
Híði skríð í, heita grenið
hjúfra mig nú inn í því.
Kveiki á kertum þrem
kúri í mjúku rúmi
Kveiki á kertum þrem
kúri upp í rúmi.
karlinn mer og krem
kát í nætur húmi.
Illt er mér í mínum búk
mögnuð að sækir leti,
Illt er mér í mínum búk
mögnuð að sækir leti.
Görnin hún er geðveikt sjúk
galinn ligg í fleti.
Magnað kemur magaskot
metangasið ólgar.