hendist ég í hringi
á hálli braut
að þjóra niðrá þingi
er þraut
þriðjudagar þykja mér
þægilegir dagar
þriðjudagar þykja mér
þægilegir dagar
því mánudagur myrkur er
mikið okkur plagar
Miðvikudagar mátulegir
malla nett í gegn
Miðvikudagar mátulegir
malla nett í gegn.
Þriðjudagar þunnir, tregir,
þykja mér um megn.
Ennþá nauðga Islams klerkar
úrum suð´r í Íran.
Ennþá nauðga Islams klerkar
úrum suð´r í Íran.
finna má þar minjar merkar
mest um hernað dýran
Salerni sjerlega hættuleg
sjá má ansi víða
Salerni sérlega hættuleg
sjá má ansi víða,
Nú þú ganar villu veg
varstu út að ríða.
Koppurinn er þarfa þing
þegar blaðran fyllist,
Koppurinn er þarfa þing
þegar blaðran fyllist.
Dansa limir kopp um kring
kvalinn lýður tryllist.
Þegar bunan þvagsins mjó
þýtur út um gatið.
Þegar bunan þvagsins mjó
þýtur út um gatið
Þá er gott að synda' í sjó
seint mun fyllt það fatið
Ingibjörg og Össurinn
engann bilbug finna
Ingibjörg og Össurinn
engann bilbug finna
Drulluhaladéskotinn
daglegu amstri sinna.
Imba er í boði Baugs
og Bónusverslananna.
[obbobbobb... örlítil ofstuðlun held ég í fyrriparti... Skabbi]
Imba er í boði Baugs
og Bónusverslananna.
Alþýðunnar heimska haugs
hamast milli tanna.
Svilann styðja íhaldsöfl
af ótta rúin viti.
Svilann styðja íhaldsöfl
af ótta rúin viti.
Válind eru valdatöfl
veistu, hér er hiti
Jæja nú er Júróvisjon
að jarmast í vorn koll
Jæja nú er Júróvisjon
að jarmast í vorn koll
Beið ég af því bráða-stórtjón
bjána- fékk ég -hroll.
Sérfræðingar spá í spil
sem spíttkúksfólk um skitu.
Jæja nú er Juróvisjon
að jarmast í vorn koll,
þvílíkt bðlvað þurukrísjon
það setur að mér hroll.
Valdi karlinn fór á fjöll
fullur allan túrinn,
[obbobbobb... fylgja þræði... Skabbi]
Valdi karlinn fór á fjöll
fullur allan túrinn,
Nú er horfin norða-mjöll.
Nú er enginn stúrinn.
Vandast öllum vísnarím
vesnar bragarfræðin
Vandast öllum vísnarím
versnar bragarfræðin.
Varist leirburð, væl og flím.
Verið skörp og hæðin.
Í kolsvart íhald Gunnar gekk
gekk í björg með tröllum.
Afsakið þetta innslag, en er ekki rétt til getið hjá mér að það sé skylda að botna næsta fyrripart á undan? Sá misfellu hér fyrir ofan á því, leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál. Má maður velja sér fyrripart?
[rétt hjá þér taka skal næsta að ofan sem heldur þræði... en ekki má þó velja sér fyrripart... Skabbi]
Manni ber skylda til að botna næsta fyrripart á undan, já. Misfellur skapast stundum þegar menn eru of seinir, eins og krummo hættir til.
[Rétt Þarfi... Skabbi]
Er þá ekki rétt að botna fyrripart Kynjólfs:
Sérfræðingar spá í spil
sem spíttkúksfólk um skitu.
hangi orðið hérum bil
hér sem maðkur í fitu
Þá á ég væntanlega að koma með fyrripart:
um kvöldsins bil hér kveða menn
kúra svo á daginn
Má maður ekki botna báða óbotnuðu fyrripartana?
[það má, en betra er að setja það á annan þráð... Skabbi]
Í kolsvart íhald Gunnar gekk
gekk í björg með tröllum.
Í Davíð bláa drengur hékk
drukknar í hlátrasköllum