— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 197, 198, 199 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 28/11/04 18:19

Í Hallgrímskirkju er heljarinnar gaman,
herra biskup gefur drengi saman.
Þeir halda svo heim
og hefja sitt geim
Læða inn lók, aftan en ekki framan

Venni fór í vísuleik
vini sína sveik hann

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/11/04 22:52

Venni fór í vísuleik
vini sína sveik hann
Gestapóið gjörvallt sveik
gott ef fær'í bann !

‹Takist eigi of bókstaflega›

Hér við kasta skulum skít
skratti gaman er það

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 28/11/04 22:57

Venni fór í vísuleik
vini sína sveik hann,
veður umm í vill'og reyk
en vísdómskverið man ann.

Geysist ein og gamalt naut
Guðni núna,

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 28/11/04 23:09

Hér við skulum kasta skít
skrattl gaman er það
með hrossataði þá ég hlít
hefja ljóðinn á blað .


Heldur fynnst mér fara geyst
Fucov núna,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 29/11/04 13:01

Helvíti á himnum er
hvítir svífa púkar.
Litblindur er Lúsifer.
Liggja meyjar sjúkar.

Ekki er lengur Vörður á verði.
VÍS hann gleypti í einum bita.

Throughout your life advance daily, becoming more skillful than yesterday, more skillful than today. This is never-ending.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/11/04 13:03

Helvíti á himnum er
hvítir svífa púkar
Skunda yfir skýin ber
skelfilegir búkar

Geislabauginn gata þeir
gerist taugin biluð

úps, of seinn...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 29/11/04 13:05

Ekki er lengur Vörður á verði.
VÍS hann gleypti í einum bita.
Lagast geð hjá lygamerði
lekur núna ræpuskita

Geislabauginn gata þeir
gerist taugin biluð

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 29/11/04 13:47

Geislabaugin gata þeir
gerist taugin biluð
hrissu átti Gunnar Geir
gerðist merin fyluð.


Glampa slær á glugga og þil
geislar fagrir skína.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 29/11/04 14:27

Glampa slær á glugga og þil
geislar fagrir skína.
Joðin eru ekki til
allt í þessu fína

Jagast í mér jómfrú ein
jötu vil í fyljast

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 29/11/04 15:35

Jagast í mér jómfrú ein
jötu vil í fyljast
Orðin hún er alltof sein
ætli hún að dyljast

Dónaskapur dálítill
djöfull skemmtilegur er

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/11/04 09:29

Dónaskapur dálítill
djöfull skemmtilegur er
Tónaflóðsins tónbítill
teygir gítarhálsinn hér

Argur Davíð ergir sig
á afturhaldskommatittum

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 30/11/04 09:33

Argur Davíð ergir sig
á afturhaldskommatittum.
Ei mun núna æsa mig
á íhaldsfyllibyttum.

Guðni pulsur gleypir hratt
gubbar tómatsósu.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/11/04 09:43

Guðni pulsur gleypir hratt
gubbar tómatsósu.
steiktur herra steypir glatt
stendur hann í pósu

Furðulegi fýrinn sá
fréttir kann að búa

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 30/11/04 09:46

Furðulegi fýrinn sá
fréttir kann að búa.
Þegar aðrir að svo gá
er hann bar´ að ljúga.

Gullvæg eru Guðna orð
gamaldags og snúin.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 30/11/04 10:33

Gullvæg eru Guðna orð
gamaldags og snúin.
Eyðileiki um andans storð
eigi verður flúinn

Davíð orðin eigi sín
alla daga sparar

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 30/11/04 10:46

Davíð orðin eigi sín
alla daga sparar.
Karlinn er að gera grín
grýlu komma varar.

Hressist Davíð hægt en vel
hrokinn vaknar óðum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/11/04 11:29

Aftuhaldskommaeymingar
úrhraksskítaflokkur
táfýlusokkateymingar
túlladrullusokkur

það má ekki lesast sem ég sé sammála Dabba með þessum botni

Í framsókn margir finnast þeir
er fíla stalínista

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 30/11/04 11:36

Framsóknar er flokkurinn
frómust lífsins gjafa.
Sóknar fúli sokkurinn
sæll ég fylg'til grafa

Úrhrak kjána miðjumoð
og mun'ei degi lengra

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 197, 198, 199 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: