Ég sá ekki í fljótu bragði að það væri neinn þráður hér sem væri með "alvöru "kveðist á"" reglum (að mér finnst) þannig að ég ákvað að búa til slíkan. Það virkar þannig að ég kem með fyrripart, svo kemur næsti og botnar hann og býr svo til nýjan fyrripart fyrir þann sem kemur næst á eftir, s.s. minn fyrripartur skal einungis botnaður í eitt sinn!
Og hefst þá leikurinn!
Skítakuldinn skelfir mann
snjórinn tekur völdin
Alveg er ég til í það þó hætt sé við að menn freistist fljótt til að setja inn óbotnanlega fyrriparta af illyrmiskap sínum
Skítakuldinn skelfir mann
snjórinn tekur völdin
frostið herða fólkið kann
fjörgar eldur höldinn
Fyrripartur:
Hækkar sólin himni á
heldur skánar spáin
Ágætur fróðleikur um stuðlasetn. & svol. =>
http://www.heimskringla.net/bragur/bragur/b2.asp
http://www.ismennt.is/not/hbr/LSstu35.HTM
Hækkar sólin himni á
heldur skánar spáin
Vísast kemur vorið þá
vaxa puntustráin.
(oj, hvað maður getur verið væminn, yakk!)
Fyrripartur:
Undir vegi út við kant
efnavopnin fundu
Undir vegi út við kant
efnvopnin funduþrýstist gríma þétt um trant
þá á samri stundu
Saddam Hussein sýndist vart
sitja á friðarstóli
Saddam Hussein sýndist vart
sitja á friðarstóli
Oní holu skaust hann skart
skreið ei framúr bóli.
Mætti Bush með byssusting
brá honum og glotti
Mætti Bush með byssusting
brá honum og glotti
Heimsins sá þá hrafnaþing
Hussein tapa skotti
Halakliptum hundi á
hærur varð að kanna
Halakliptum hundi á
hærur varð að kanna
flóabitinn fnykur þá
fannst já af þeim manna
Fangi stríðs þeir staunglast á
stríð á eiginn fólki
Fangi stríðs þeir staunglast á
stríð á eiginn fólki
margur áður mátti fá
mat úr byssuhólki
Núna Husseins haka snauð
híma verður inni
Núna Husseins haka snauð
híma verður inni
öruggt athvarf Georg bauð
- enda friðarsinni
stuð er þessum þræði á
þegar vel er kveðið
stuð er þessum þræði á
þegar vel er kveðið
puðum versavæðumst þá
vel um það er beðið
Hér á þessum þræði má
þræla vísum saman
Starir þegjandi út í loftið, hugsi yfir ófrumlegum fyrriparti sínum
Hér á þessum þræði má
þræla vísum saman
rennur skáldin æði á
eldrauð verðí framan
vona ég að vísurest
verði ekki þvaður
vona ég að vísurest
verði ekki þvaður
von er góð en víst er best
að vanda fyrsta blaður
Þessi fíni þráður er
þokkalega góður
vona ég að vísurest
verði ekki þvaður
þetta er nú eins og flest
aðeins þrugl og blaður
gaa.. jæja hér kemur þá:
Þessi fíni þráður er
þokkalega góður
yrkja núna fljótur fer
fróður bæði'og óður
Hvað er það í heimi hér
helst sem mætti njóta
þetta held ég að sé reyndar sígildur fyrripartur
Ussu-suss bannað að breyta!
En jæja.
Hvað er það í heimi hér
helst sem mætti njóta?
aftantil og uppá þér
eða milli fóta
kötturinn er kynjadýr
kafloðinn og spakur
kötturinn er kynjadýr
kafloðinn og spakur
maðurinn er möppudýr
móður bæðog rakur
Listavel hér valsa um
í vísnagerðardansi
Listavel hér valsa um
í vísnagerðardansi
gleymi mér í galsanum
gjarnan held ég skransi
kýrin gengur klaufum á
kálfa hefur fína
kýrin gengur klaufum á
kálfa hefur fína
spena hennar harkast þá
heimasætan Stína
Kálfar litlir leika sér
ljúft við hvern sinn fingur
Kálfar litlir leika sér
ljúft við hvern sinn fingur
skabbi hérna skrafa fer
skæður hagyrðingur
upp í loftið flýgur fugl
fyrir utan glugga