Ef það er kaffi í boði þá mæti ég...
Ef það er til kaffi og kakó þá skal ég koma með Koníak og Stroh.
röltir útí ríki og fer að breyta aur í vín.
Ahhh, já, Ceres Royal er enn einn af þeim bestu. Afar vel valið, held ég fái mér einn líka.
-
ég drekk bara Erdinger Dünkel, dökkan.
Dünkel, dökkan? Þetta er eins og Colour, litfilmur. Ágætur bjór, en mér leiðist hvernig hveitið á það til að setjast á botninn og mynda óaðlaðandi skán á bjórnum.
Verð að sætta mig við léttöl í kvöld.
Jæja, úr því að menn eru komnir í léttölið, er þá ekki alveg við hæfi að ræða það aðeins.
Ég er sjálfur vanur að kaupa Víking léttöl þegar ég á annaðborð fjárfesti í svoleiðis gutli.
-
Sjálfur drekk ég Stella Artois eða dökkann Leffe. Belgar eru meistarar í að brugga sterkan bjór sem er ekki of bitur. Leffe-inn er þó líka mjög góður ljós. Bragðmikill og þungur með sterkum maltkeim. Þetta er skrifað fyrir hádegi á mánudegi... þetta verður löng vika...
Já, einmitt vegna þess að það er fyrir hádegi á mánudegi vildi ég byrja rólega, bara í léttölinu. En þér tókst að kæfa það í fæðingu.
-
mér leiðist hvernig hveitið á það til að setjast á botninn og mynda óaðlaðandi skán á bjórnum.
Það er þessvegna sem flöskurnar eru dökkar og ógagnsæjar.
Annars datt mér aldrei í hug að hveitibjór gæti orðið svona góður áður en ég smakkaði hann.
hvur fjárinn... maður skilur við lútin nokkrar vikur og allir vaða um í bakkus á meðan, ég missi alltaf af öllu Lemur höfðinu margoft í steinsteypt gólfið
en ég á eflaust ekki heima hér á meðal ykkar snobblútana, mín fíkn er drykkur hins sótsvarta almúga, Captain Morgan (svo lætur maður sig hafa það að sötra Víking mjöð ef annað er ekki á boðstólnum)

Allir drykkjumenn eru jafnir í Baggalútíu, hvað svo sem þeir drekka...er það ekki?