afhendir Hakuchi og Vladimir tvær kýr í þakkarskyni Og munið, það á bara að mjólka kýrnar tvisvar á dag.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að Útvarpsstjóra hefur verið bætt á viðeigandi stað inn í ráðherra- og embættismannalistann enda stórmerk uppfinning er hjer hefur verið gerð.
Rjett í þessu uppgötvuðum vjer hinsvegar þau alvarlegu og ófyrirgefanlegu mistök að það gleymdist að ákveða undir hvaða ráðuneyti ríkissáttasemjari skuli heyra. Óskum vjer hjer með formlega eftir tillögum.
Ég tel heppilegast að embættið heiri beint undir forseta eða konung svo að ekki sé hætta á því að spilltir ráðherrar hafi of mikið með þetta mikilvæga embætti að segja.
líður nokkuð vel eftir mjólkurþambið
Ríkissáttasemjari leysir úr vandamálum. Er ekki vandamálaráðuneytið tilvalinn kostur?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að tillaga þessi hefur hjer með verið formlega samþykkt og afgreidd.
Vjer viljum hinsvegar nota tækifærið og mótmæla orðum Upprifins þar sem hann gefur í skyn að í Baggalútíu sje spilling (spilltir ráðherrar...). Í Baggalútíu er engin spilling. Engin ! Fer fram á 'skaðabætur' frá Upprifnum fyrir að fara eigi lengra með málið
ég vildi aðeins vera viss um að embættið heirði beint undir þá aðila sem útilokað er að geti hugsanlega spillst.
fer í samningaviðræður við vin sinn fjósamanninn um fleiri kýr handa Vlad og Hakuchi
hlustar á Upprifinn, finnur svo handa honum eina aldna og geðvonda belju sem "mjólkar" nánast ekkert Ég má ekkert annað missa.
nískupúki.
Heyrðu vinur, þessar kusur eru eign heimsveldisins núna og því þýðir lítið að ætla að múta yfirvöldum með þeim. Ekki fer ég að láta þig fá úr kynbótastofninum í Borgarfirði.
annað eins hafa menn nú gert fyrir vini sína.
laumar undanþágumiða að Stjóra
Jæja jæja sendir mjaltakonuna suður í Borgarfjörð eftir nautsmóður
Blessuð skepnan ætti að koma eftir 2-3 daga.