Vegna fréttar þann 6. janúar árið 2004 eftir PvL er vert að benda á að árið 2000 var alls ekki hlaupár eins og ranglega er haldið fram í fréttinni. Til að leiðrétta litla skekkju í tímatalinu var ákveðið að hlaupár yrðu á fjögurra ára fresti nema á heilli öld. Það þýðir að síðasta hlaupár var fyrir átta árum, eða árið 1996. Takk fyrir. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér [/code]
Til að leiðrétta litla skekkju í tímatalinu var ákveðið að hlaupár yrðu á fjögurra ára fresti nema á heilli öld.
Þó með þeirri undantekningu að það er hlaupár ef 400 gengur upp í ártalið. Skv. heimildum er vér teljum áreiðanlegar gengur 400 upp í 2000.
Voðalega eruð þið vitlausir. Meira að segja Morgunblaðið kom út þriðjudaginn 29. febrúar árið 2000 - ekki að ég setji traust mitt á slíkan falsmiðil, en þeir kunna að telja, það mega þeir eiga, annað en sumir...
EKKERT RUGL!
Þó með þeirri undantekningu að það er hlaupár ef 400 gengur upp í ártalið. Skv. heimildum er vér teljum áreiðanlegar gengur 400 upp í 2000.
Akkúrat.
En það er gott að vita til þess að menn séu vakandi.
Óskaplega eru menn eitthvað smámunasamir hér ;)
Smámunasamir? Hér er hópur manna sem hefur byrjað helgina degi fyrr en við hinir síðan í byrjun mars 2000, það eru engir smámunir.
Fyrir utan það að ef einhver færi á morgun að reyna að telja oss trú um að dagurinn í dag hafi aldrei verið til og að vér höfum aldrei skrifað orð þessi væri það grafalvarlegt mál og fullkomlega sambærilegt við þá fráleitu fullyrðingu að 29. febrúar 2000 hafi eigi verið til.
Það sem alvarlegra er að þessi dagur á að sjálfsögðu að nýtast sem auka frídagur. Ef að við tökum bara einfallt dæmi. Ég vinn 5 daga vikunnar og það gera 20 daga í mánuði það þýðir að ég á 8 daga í frí á mánuði. Ef að ég á að fara að vinna þenna dag það er að segja 21 dag í mánuði og eiga samt bara 8 daga í frí, mun alveg gera útaf við mig.

´
Leysum málið með því að lýsa 29. febrúar almennan frídag og sérstaklega ætlaðan til áfengisneyslu (ég tala nú ekki um ef einhver lumar á hvannarótarbrennivíni!).
Sammála síðasta ræðumanni!
Dregur fram bleikjuhrognabrennivín. Skál!!
Skál fyrir því...fer ekki að líða að þorrablóti dregur fram íslenskt brennivín og fær sér slurk Skál
Skál fyrir þorranum! (Ertu með venjulegt eða Hvannarót?)
Undirritaður biðst innilega afsökunar á að hafa farið hér með fleipur. Auðvitað hefur Baggalúturinn rétt fyrir sér, eins og alltaf. Brestur í óstöðvandi grát
Undirritaður biðst innilega afsökunar á að hafa farið hér með fleipur. Auðvitað hefur Baggalúturinn rétt fyrir sér, eins og alltaf. Brestur í óstöðvandi grát
Ég held að hér sé kominn einstaklingur sem stal Baggalúti hér um árið!!! HAFFI!!! Munið þið ekki eftir laginu Haffajól? Ef ekki rifjið það þá bara upp!
Eru Hafþórarnir þá tveir ??
Sko, ef einhver er kallaður Haffi, þá er ekki sjálfgefið að hann heiti Hafþór, sbr. Hafsteinn, Hafberg og Hafgeir.
Já en Hafliði er aldrei kallaður Hafþór eða Haffi en hinir eru einnig kallaðir Hafþórar eða Haffar. Þar hafiði það.
p.s. Hafbjörn, Hafdór, Hafbert eða Hafmundur eru ekki kallaðir Haffar heldur.
Aukinheldur eru engar vísbendingar sem gefa til kynna að nokkurntíman hafi 'Ester' né 'Lísa' verið kallaðar 'Haffi'. Hvorki sín í hvoru lagi né saman. Tek ég þetta fram til að útiloka allan misskilning og tjá hneikslan mína á þeim einstaklingum sem töldu að fyrrgreind nöfn hafi hlotið áður téð gælunafn.
-