Um daginn breytti Sverfill Bergmann um mynd, rakaði af sér Burt Reynolds skeggið og breyttist í einhvers konar demónískan Eastwood. Það er gott og blessað. Nú, skömmu síðar, er eitthvað sem kallar sig Leibbi Jazz kominn með sömu mynd. Það er afar óþægilegt og hefur í för með sér talsverðan rugling þar sem Sverfill er tengdur þessari Reynolds mynd órjúfanlegum böndum.
Legg ég til að myndum sem fastanotendur skipta út verði fargað eða settar í geymslu svo að aðrir fari ekki að taka upp sömu mynd.
Hjartanlega sammála, Sverfill var líka ef ég man rétt með Frelsishetjulúkkið á tímabili, hrikalega óþægilegt
Hjartanlega sammála, Sverfill var líka ef ég man rétt með Frelsishetjulúkkið á tímabili, hrikalega óþægilegt
Svona er þetta bara með stórmenni, Þau eru alltaf í tísku og aðrir vilja vera eins.
Góð athugasemd - það er náttúrulega óþolandi að menn séu að þykjast vera aðrir sem þóttust vera aðrir fyrst ... eða ... já!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Það var í aungvu ætlan mín að pósa sem einhver annar en Leibbi Djazz. Hafði ég ekki hugmynd um vinsældir Sverfils Bergmanns né þá heldur að hann hafi notast við Burtarann. Af litlu úrvali þá fannst mér myndin af Börta heldur til skárri en Gro Harlem Brundtur, enda hæfir sú ímynd kannski ekki alveg nafninu Leibbi Djazz. . .
Ég bið Hakuchi innilega afsökunar á þeim ónotum sem hann hefur hlotið af þeirri ákvarðanatöku minni um að velja Börtarann. En svo ég gerist nú fertugur úr hófi fram.
"Svona er lífið!"
Þetta er allt í lagi Lebbi minn. Ég vil benda þér á að þú getur líka fundið þína eigin mynd á netinu og sent honum Enter og hann plástrar henni síðan við nafnið þitt.
En ef ég á hér mynd af sjálfum mér sem ég myndi hugsanlega vilja notast við. Get ég þá ekki bara sent honum myndina í viðhengi í email.
Spurningin er bara þessi, hvar er Enter?
á Enter póstfang?
ef svo er, er hann kona?
enter@baggalutur.is, en Enter er ekki kona, ég sá hann nefnilega í Hagkaup á Þorláksmessu og reyndist hann afar karlmannlegur...
Hefur Enter nú fengið sendan rafpóst með mynd af mér sjálfum, svo öll ónot yfir Bört reynólds myndinni ættu að hverfa sem dögg á móti sól. Það skulum við allavega vona.
Veivei!!!
Eins og glöggir lesendur hafa séð að þá svipar Leibbi Djazz ekki lengur til Börtarans Reynólds, heldur einungis til sjálfs síns. Vonandi að meintir friðagæsluliðar sitji nú sáttir við hringborð sitt
Kv.
Leibbi Djazz
Þess má til gamans geta að mynd þessi er ca. 1 1/2 árs gömul. Í dag er ég mun myndugri, meiraðsegja með sítt að aftan.
takk
Enter á víst einhverskonar Fasabreyti sem umturnar öllum mólíkúlum og mörkúlum á þeim myndum sem hann fær sent í grænt. Myglugrænn væri víst viðeigandi lýsing. . .