Vá! ég hélt að það þyrfti minnst fjóra leiki í upphafi til að máta í sem fæstum leikjum. En þetta afsannar það alveg gjörsamlega, það er greinilegt að einhver er búinn að opna jólagjöfina ívið snemma í Desember og hefur hann væntanlega fengið spil Hróksins.
Stysta mátið ku skv. vitneskju vorri vera 1.f4 e5 2.g4 Dh4 mát og má svo fara að rífast um hvort þetta séu 4 leikir eða 2 leikir.
Hinsvegar er spurning hvort það sé eigi verðugt verkefni nýrrar ríkisstjórnar að breyta skákreglum, t.d. er það óþoloandi kynþáttamisrétti að hvítur eigi ávallt fyrsta leikinn auk þess sem það vantar fulltrúa fleiri kynþátta og/eða þjóðfélagshópa. En það er umræða sem á heima á "Efst á baugi" eða "Almennt spjall" en eigi hér.
Þið verðið að byrja aftur... það gleymdist að kveikja á skákklukkunni!
Gott og vel. Sjáum hvort mér takist ekki að þrauka lengur í þetta sinnið:
d2-d4.
Hlewgast: fékkstu nýja skák spilið frá hróknum í jólagjöf?
MÁT!
HAHAha
Jæja við skulum þá byrja aftur. íhugar vel og vandlega hvernig næsti leikur geti farið í minnstakosti þrjá leiki Hrókspeð drottningarmegin einn áfram.
hlewagastiR, ég held að ég sé kominn með góða ráðherrastöðu handa þér!
Skákmálaráðherra Baggalútíu
aahahaha, þarna misstirðu sko af eftirlaununum
Já það er rétt. Ég er heldur ekkert sérlega vel gefinn, sjáðu til.
Það stoppaði nú ekki alþingismenn. Ég held frekar að þetta sé ekki heimska heldur sannfæring, drenskapur, göfuglyndi, háttgöfgi, lífsmottó eða bara óheppni.
Skákséní og snillingar allir til hópa. Takk fyrir frábæra skák. Ég reyni aftur: d2-d4.