-Hvernig væri að taka upp hanskann fyrir færeyinginn. Þegar ég var 12 ára gamall var ég í sveit þar sem var færeyingur einnig að störfum. Hann hataði mig! Hann kallaði mig yfirleitt aldrei neitt annað heldur en "Helvítis Svekklíngur!"
Mér láðist það einu sinni að spyrja manndjöfulinn hvað hann ætti við með því að kalla mig alltaf "Helvítis Svekklíng" signt og heilagt?
Útskýringin var sú, að Svekklíngur væri samheiti yfir "aumingji sem get ekki lyft neitt!"
Svekklingur = Aumingji sem get ekki lyft neitt
Hversu niðrandi er það
Þetta er náttúrulega mjög niðrandi en við getum bætt um betur og sagt Helvítis Færeyski Svekklingur. eða Færeyskur aumingi sem getur ekki lyft neinu.
Loksins duttu þið niður á almennilegt umræðuefni frunsukunturnar ykkar.
Gætið þess nú að fara ekki yfir strikið...
Það væri leiðinlegt að þurfa að loka svo skemmtilegum þræði.
Strikið er hérna að neðan, það lýtur út sem að þetta sé lokasvarið þar sem að strikið kemur hér.
_________________________________________________________
Ég finn mig knúinn til að blanda mér í þessa umræðu, því ekki get ég betur séð en að hér vanti hin þjóðlegu fúkyrði: Niðursetningur og Hreppsómagi.
Stúkumaður er voðalegt orð (þarna fór ég líklega yfir strikið).
Ekki nefna þetta orð í minni viðurvist, þú...þú...þú...labbakútur
Er þá Lóubjáni ekki fyrirtaks niðurorð.
þetta er auðvitað hinn merkilegasti fræðabálkur, hér eru nokkur orð sem mér koma til hugar.
Slöttuólfur
Kúkaklepri
Þorraþefur
Vilpuskriðill
Fjár-festir
Ormskitudindill
Haughaus
einnig minnist ég stórgóðs orðs er ég sá hér á gestapó en það er orðið saurþjófur, getur nokkuð verið verra? (nema þá hugsanlega færeyskur saurþjófur)
Einu sá ég í e-i ræmu, þar var eintaklingi lýst sem svo lítilfjörlegum að hann var kallaður Naflaló
Svekklingur![/i]
Gætið þess nú að fara ekki yfir strikið...
Það væri leiðinlegt að þurfa að loka svo skemmtilegum þræði.
Afsakið. Mundi silfurskeið vera við hæfi?
Slettireka
marfífl
Drulluseppi
eða
Skítapési
Einnig var alltaf í hávegum hjá ólæsum piparsveinsfrænda mínum í sveitinni orðið Krakkaskítur. . Ákaflega skemmtilegt þegar hann söng mann í kaf með níðvísum sem engum öðrum en einmanna bitrum piparsveini dytti í hug að syngja um 7 ára frænda sinn..
"Leibbi(Djazz) litli krakkaskítur, leibbi fjárans ánamaðkur, leibbi skrattans drulluhali lenti haughúsinu í" o.s.frv. o.s.frv.