Las nú í morgunsárið á einum af óæðri miðlunum að Wiesenthal stofnunin væri nú að lýsa eftir nasistum, sem er ágætt í sjálfu sér, en þó var eitt sem truflaði mig lauslega, og var það að einnig var boðin væn fúlga fyrir fylgismenn Gestapó. Tekur andköf og fær sér vænan sopa af viský Gæti hugsanlega falist í þessu að gestir hér á Gestapó yrðu héðanífrá hundeltir af útsendurum stofnunarinnar? Og er hugsanlegt að gestir hér á Gestapó fari nú að láta ábendingum rigna inn til Wiesenthal stofnunarinnar um samgesti á Gestapó í von um skjótfenginn gróða? Er einhver óhultur? Tekur vænan sopa af viskýi, sem gæti verið sá síðasti
er ekki alltí lagi að "gestirnir" séu hundeltir meðan við hinir erum látnir í friði.
Hvað fæst greitt fyrir eitt stk. gest hjá umræddri stofnun?
Ef vefnum yrði breytt þannig að sá sem skráir sig inn sem "Gest" yrði framvegis skráður inn sem "Nasisti" yki það líkurnar á að sá yrði tekinn, en við hinir slyppum.
Ég er gáttaður á því að við skulum þurfa að sæta áreiti á meðan ókindur eins og Herr Flick ganga enn laus.
Eigið þér við að Herr Flick sé e.t.v. að finna hér á GESTAPÓ ?? klórar sér í höfðinu
Hurðu, það er satt!!! Hvur djöfullinn!!! En ekki er Hakuchi Framsóknar?
Hey!, munið þið eftir umdeildum Brasilíuþætti Simpsonþætti. Lisa segir eitthvað á þessa leið: "my penpal is a boy from Brazil" og Homer bregst við í örvæntingu: "A boy from Brazil! Don´t they all look like little Hitlers???" Síðan bregður af honum og hann tautar fyrir munni sér: "Well...at least it said so in the movie."

???

!!!
klórar sér í höfðinu Að öllu leyti er ég sammála þér frelsishetja, tel þessa tilvitnun Gorgonzóla sumpartinn ruglingslega, fær sér viský á klaka í hádegismat að ótöldum stafsetningarvillum, þá er hún málinu gjörsamlega óviðkomandi.
Getur ekki verið að samhengið upplýsist síðar. Þetta minnir mest á véfrétt, ég legg til að Dordingull sem iðulega sér það sem mönnum er hulið túlki orð Gorgonzola.
En er ég þá líka framsóknar...., ef svo er það þá jákvætt eður ei?
Hey!, munið þið eftir umdeildum Brasilíuþætti Simpsonþætti. Lisa segir eitthvað á þessa leið: "my penpal is a boy from Brazil" og Homer bregst við í örvæntingu: "A boy from Brazil! Don´t they all look like little Hitlers???" Síðan bregður af honum og hann tautar fyrir munni sér: "Well...at least it said so in the movie."
???
!!!
klórar sér í höfðinu Að öllu leyti er ég sammála þér frelsishetja, tel þessa tilvitnun Gorgonzóla sumpartinn ruglingslega, fær sér viský á klaka í hádegismat að ótöldum stafsetningarvillum, þá er hún málinu gjörsamlega óviðkomandi.
Gott að vita að ég sé ekki einn um þetta.
Nojts, grænn er ekki litur. Hann er bara Framsóknar.
HVað erum vér þá vegalausir í stórborg Baggalúts???
Sjálfstæðismaður af litnum að dæma.
Afsakið, ómálefnamennskuna, en ég er fyrrum Gorgonzóla og núverandi tinni. Tilefni skrifanna voru hugrenningatengsl varðandi nafnið Simon Wiesenthal en hann mun vera fyrirmyndin af Herr Lieberman (leikinn af Laurence Olivier) í kvikmyndinni "The Boys From Brazil"(1978) Ég var reyndar að reyna að öðlast höfuðidentity hér og einhversstaðar fékk ég þær leiðbeiningar að skilyrðið væri að senda inn skilaboð á umræðuvef. Hvað á ég að gera? Hvernig fæ ég mynd?
Horfir niður í gólfið og skammast sín, bæði fyrir að hafa ekki séð myndina og vera grænn (reyndar blágrænn, en er það ekki bara enn verra?).