Maður verður að vera háæruverðugum yfirmanni sínum innan handar í málum sem þessum...
Mikið rétt. Hægt er að versla Tinnabækurnar á http://fjolvi.is/Store/cat0001.htm
Samþykkt, svo lengi sem Hakuchi veitir blessun sína...
Mikið rétt. Hægt er að versla Tinnabækurnar á http://fjolvi.is/Store/cat0001.htm
Þetta er lofsvert framtak hjá Fjölva. Mér finnst hins vegar algerlega hneykslanlegt að Iðunn (Eddu fjölmiðlun nú) skuli ekki bjóða upp á samsvarandi þjónustu með gömlu titlana sína. Hvað varð um Sval og Val? Umfram allt: Hvað varð um Viggó Viðutan? Hvergi finnast titlar með þessum kempum á mörkuðum, hvað þá á netinu.
Það er skelfilegt, svo ekki sé meira sagt...snilldarbækur
Hárrétt hjá hr. H. Snobbæsingspakk sem það nú er. En nú er okkar kynslóð vaxin úr grasi, ég vona að sú kynslóð muni gera betur við arfinn en þetta. Legg ég til að við skipuleggjum tölvupóstsherferð gagnvart Eddumiðlun og Fjölva um að heimta gömlu titlana útgefna ásamt því að lokið verði að þýða allar bækurnar í öllum flokkum. En nauðsynlegt skilyrði er að gömlu þýðendur bókanna verði grafnir upp því þeir voru greinilega snillingar, nafnið Hr. Seðlan er einmitt glæsilegur vitnisburður um það.
Já Tinnabækurnar eru stórfenglegt bókmenntaverk. Nykur fékk mikið áfall í æsku þegar Tinni og bláu appelsínurnar komu út, en þá birtust fyrst ljósmyndir af Tinna og leist Nykri ekkert á kauða. Þess má einnig geta að Nykur á allar Tinnabækurnar og þrífur ávallt kjöl þeirra fyrir Jól. Gaman væri að heyra hverjar uppáhaldsbækur lútverja væru í þessum merka bókaflokki, Nykur heldur einmitt mest uppá Bláa lótusinn.
Uppáhaldsbókin mín er Tinni og Gylltu Krabbaklærnar þar sem Tinni hittir Kolbein Kaftein í fyrsta skipti. Hörður stýrimaður var fínn vondikall.
Uppáhaldsbókin mín er Tinni og Gylltu Krabbaklærnar þar sem Tinni hittir Kolbein Kaftein í fyrsta skipti. Hörður stýrimaður var fínn vondikall.
Nafn umrædds meistaraverks heimsbókmenntanna mun reyndar vera Krabbinn með gylltu klærnar.
Uppáhalds Tinnabók vor er líklegast "Leynivopnið" þar sem við sögu kemur vopn nokkurt er minnir eigi lítið á gjöreyðingarvopnið ógurlega, elipton. Er eigi útilokað að hugmyndin að því vopni sé ættuð þaðan. Þá kemur einnig við sögu einræðisherrann Amaík Glerskeggur án þess þó að hann sjálfur sjáist nokkursstaðar í eigin persónu heldur eru af honum styttur og myndir út um allt auk þess sem skeggi hans í stílfærðri mynd bregður fyrir á hurðahúnum, lömpum, hinum ýmsu (vöru?)merkjum og líklega skjaldarmerki umrædds ríkis líka ef oss misminnir eigi.
Ekki vill svo vel til Tinni minn að þú eigir ennþá óranslitaða geimgallann þinn? Mér er nefnilega boðið á grímudansleik um næstu helgi.
Já, Tinni í Kongó hafði athyglisverða sýn á svarta kynþáttinn, sem voru ekkert annað en stór hópur af klónuðum litlum svörtum Sambóum.
Annars fannst mér eiginlega allar Tinnabækurnar sem ég las skemmtilegar...
Mér finnst lifandi og eðlilegt fólk eithhvað svo skrýtið og raun fáránlegt að það sé til. Frá mínum bæjardyrum er teikniheimurinn hinn hreini og sanni raunveruleiki.
Því miður þetta með geimgallann, það var fjárans svikahrappurinn hann Herra Wolf sem losaði geimbúningana okkar út í loftleysið, rétt áður en við flettum ofan af svikum hans. Wolf lenti síðan í höndum Zepo-lögeglumanna og ég sá hann aldrei aftur...