Tilvitnun af forsíðu Baggalúts þann 14/12: Sjáandinn gókunni Nostradamus fæddist þennan dag fyrir 500 árum.
Gókunni? Hvað er gókunni? Hvað varð um prófarkalesarann? Hvernig getur ritstjórn þessa gæðavefs látið slík hörmungarmistök dynja á orðstír Baggalúts?
Nú vil ég benda á hversu hlægilegt það ætti að teljast að breyta eftir orðum manna eins og nostradamusar. Eins og allir vita fæddist nostradamus í fátækrahverfi í norðurhluta síberíu. Ólst hann upp í hópi síberíutígra og kunni fram að 12 ára aldri ekkert annað en tígramál. Þegar hann svo var tekinn í manna tölu á þrijða mánuði hins tólfta árs ævi hans, hófst hin langa ganga til þekkingar á móðurmáli hans, sem heitir á frummálinu ichzurch, en það er að mörgu leyti skylt því máli er þjóðverjar tala í dag. Við 32 ára aldur var Nostradamus svo fulllærður í móðurmáli sínu og hófst hann þá handa við að læra stærðfræði, læknisfræði og ensku. Einnig lærði hann alkemí, galdralækningar og sálfræði í kvöldskóla í heimaþorpi sínu. Þessu námi lauk hann 109 ára gamall og var hann þá orðinn ansi kalkaður. Ári síðar hóf hann sín margrómuðu skrif, en birtust spádómar hans þá í garnaspárdálki í úbreiddu tímariti þar syðra. Margir fylgjendur hans, svo sem múhammeð, skráðu spár hans niður og rituð að lokum í bók.
Puff, gókunnur eða ekki, þá var Nostradamus ekkert merkilegri en ég.
Strunsar út af sviðinu og fær sér viskýsopa
Jújú, ég get ráðið framtíðina alveg eins og hann.
Jújú, ég get ráðið framtíðina alveg eins og hann.
Þá er mér spurn
Hvernig mun komandi tíð verða?
Gætirðu verið ögn nákvæmari.....
Ég frétti þetta á spjalli við löngu látinn mann, veit ekki hvort ég nái nokkru meira uppúr honum.
Allt sem ég sé það hefur ótal hliðar
Gunnar í Krossinum að taka saman helstu atriði Opinberunarbókarinnar í ræðu?
Var þetta Sánkti Nikulás?
Var þetta ræða Davíðs þegar hann tók alla peningana sína út úr Búnaðarbankanum?
Þetta er nú skemmtilegt. Mig grunar að ég hafi svarið, að minnsta kosti hver höfundurinn er. Hef því miður ekki verkið hérna hjá mér svo ég get ekki flett þessu upp.
Langar nú ekki að skemma fyrir hinum, en langar til að vita hvort ég sé ekki kominn með þetta: á aðalsöguhetjan ekki dvergvaxinn vin, afskaplega ljósan yfirlitum, sem heitir Tóbías?
Nú? Ég var reyndar með Óbærilegan léttleika tilverunnar í huga.
Aha auðvitað! Fáviti getur maður verið.
Ég þarf að fara að rifja upp Tinnabókmenntirnar. Þetta var bókin sem gerðist að hluta á Íslandi er það ekki. Man ekki nafn hennar en það voru stórir sveppir í henni. Man að ég var alltaf hálf smeykur við skallann á þessum Bölmóði þegar ég var smápolli.