Er tæknilega mögulegt að hafa sérstakan lit ellegar einhverskonar tákn fyrir framan titil þráðanna ef manns eigin persóna hefur lagt innlegg í viðkomandi umræðu? Auðveldara að átta sig á hvar svara gæti verið þörf.
Ég er með eina tillögu: Er möguleiki á að lagfæra með stafrænum hætti skegg Úrsusar. Það lítur út eins og raksápa á skegglausu andliti. Þetta er viss þröskuldur gegn inngöngu jólaskapsins. Endilega reddið þessu.
Það vantar, save draft, á svarborðið það yrði til mikils hægðarauka fyrir þá sem þurfa alltaf að hlaupa frá.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Hakuchi! þú lítur nú bara út eins og snaróður talibani á myndinni! Hvað var verið að gera við þig þegar hún var tekin?
Þessi mynd var tekin rétt áður en Hakuchi lamdi Þorgrím Þráinsson í Kringlunni...og var kominn tími til
Úrsus, hefurðu prófað valmöguleikann "Þín innlegg" þar geturðu séð hvar þú hefur tjáð þig og einnig hvort einhver hefur tjáð sig á téðum þræði síðan þá.
Þessi mynd var tekin rétt áður en Hakuchi lamdi Þorgrím Þráinsson í Kringlunni...og var kominn tími til
Næstum því rétt. Þessi mynd var tekin rétt eftir að ég barði Þorgrím Þráinsson í Kringlunni. Eins og sést af svipbrigðum mínum tókst mér ætlunarverkið fullkomlega.
Hins vegar tókst mér greinilega ekki að skrá mig inn á gestapó. Ég skrifaði ofangreinda færslu.
Hakuchi! þú lítur nú bara út eins og snaróður talibani á myndinni! Hvað var verið að gera við þig þegar hún var tekin?
Snaróður talibani? Miklu heldur hress en hirðulaus æringi. Það er öllum hollt að vera hirðulausir enda eru pempíur ekkert nema kynvillingar og leiðindapúkar.
Mér finnst nú ekki beint í anda jólanna að vera berja fólk niður í mekka verslunarfíkla.
Og skammastu þín svo!
Þetta þarfa framtak hjá Hakuchi verður skráð á spjöld mannkynssögunnar.
Mér finnst nú ekki beint í anda jólanna að vera berja fólk niður í mekka verslunarfíkla.
Og skammastu þín svo!
Ég var ekki að berja fólk. Ég var að berja Þorgrím Þráinsson.
Mig grunar að Grimmis sé eitthvað heitur fyrir Þorgrími Þráins
Ég er með eina tillögu: Er möguleiki á að lagfæra með stafrænum hætti skegg Úrsusar. Það lítur út eins og raksápa á skegglausu andliti. Þetta er viss þröskuldur gegn inngöngu jólaskapsins. Endilega reddið þessu.
En er eigi hugsanlegt að þetta eigi að vera svona, þ.e. verið sé að sýna hér á táknrænan hátt fyrirfram hvað gerist eftir jólin er jólasveinar og svipað þenkjandi fólk rakar af sér skegg það er það safnaði yfir hátíðarnar ?
Mig grunar að Grimmis sé eitthvað heitur fyrir Þorgrími Þráins
*roðn*
tjah... forðar sér
Labbar fyrir utan gluggann en tekur eftir bagglýtingum inni á staðnum, ákveður hann að horfa betur inn um gluggann og jú rétt þetta eru bagglýtingar. Ákveður að taka til fótanna sem hann gerir. En hugsar með sér afhverju eru þeir allir á Café Cózy???...........