Skabbi minn... hvað í dauðanum kom eiginlega fyrir þig? Ertu alveg að breytast í ógæfumann? Ég krefst útskýringa. Ég er byrjaður að sakna vel greidda Skabba með blíða brosið.
usss... þau saursamtök?
Maður er bara eitthvað slappur þessa dagana, kannski drekk ég ekki nógu mikið
Fáðu þér aðeins neðan í því og reindu að hressa uppá útlitið ég þekki þig ekki first
Þetta lagast vonandi þegar líður á daginn...eigiði norska brjóstdropa til að hressa mann við.
þetta er fín mynd Skabbi minn, minnir mig óneitanlega á hana föðursystur mína en hún er einmitt svona á svipinn rétt áður en hún prumpar.
ég er að pæla í að byrja með hjálparstarfsemi þar sem fólk getur farið í "ávötnun", sem er andstæðan við hina hræðilegu "afvötnun".
Ég sé ekki betur en myndin sé af því einstaka ljúfmenni Mikael Tal, sem var eins langt frá því að vera skrumari og nokkur maður getur orðið.
Nei blessaður vertu, hann Tal var að herma eftir Skabba.
Þetta lagast vonandi þegar líður á daginn...eigiði norska brjóstdropa til að hressa mann við.
Það þíðir ekkert að segja mér að þú hafir drukkið norska brjóstdropa. Þú hefur fengið þér aðeins of mikið af gerjuðu jólaöli er ég hræddur um, eða hvernig skíriðu húfuna annars?
Jamm, maður er allur að hressast...kominn í jólaskap og allt...nú er bara að finna næsta jólaglögg.
Ég sé ekki betur en hann sé meira að segja orðinn rjóður í kinnum! Já hvernig var með þetta Baggalúts jólaglögg? Er búið að drekka bruggið?
Skabbi sýnir sitt rétta andlit!
Gaman að sjá það.
Svona þekki ég þig aftur
Hvar skyldi maður fá svona jólasveinahúfu? Ætli ritstjórnin úthluti svoleiðis?
Skabbi tekur sig bara vel út, en hann má bara ekki fara í jólasveinabúning frá toppi til táar. Ekki viljum við að blessuð börnin standi sveinka að ákavítisdrykkju á almanna færi.
ha!? laumupúk!? hrekkur upp stórhneykslaður á þessari dólgshegðan
neinei, það er búið að snúa merkingu orðsins "hóf" við hjá Skabba, hann drekkur í óhófi ef hann drekkur of lítið.
Er engin að átta sig á því að Skabbi er að halda upp á 1000ára(innljeggja) afmæli.
Skabbi minn: Til hamingju og drekktu eins og þú villt.