Þetta eru fínar hugmyndir hjá þér. Veit ekki hvort t.d. Hornfirðingar yrðu sáttir við að láta kenna sig við Þingvelli en öll hin nöfnin ættu menn að geta verið sáttir við. En er ekki ástæðan fyrir núverandi kjördæmaheitum sú að þau eru gagnsæ? Þar er vísað til landshluta og meira að segja mestu skussar í landafræði geta staðsett þau svona nokkurn veginn.
Af augljósum ástæðum eru mest viðeigandi nöfnin á kjördæmunum að mínu mati eftirfarandi:
- Enter
- Herbert
- Myglar
- Númi
- Kaktuz
- Spesi
Af augljósum ástæðum eru mest viðeigandi nöfnin á kjördæmunum að mínu mati eftirfarandi:
- Enter
- Herbert
- Myglar
- Númi
- Kaktuz
- Spesi
...og hver fær hvaða kjördæmi?
Framsóknarmaðurinn Myglar hlýtur að krefjast þess að Norðaustur kjördæmið heiti eftir sér. Þar eru fleiri framsóknarmenn á fermetra en Kínverjar í Peking.
hlewagastiR hefur rétt fyrirsér og reyndar síðasti ræðumaður einnig.
En Það væri kanski ráð að rifja upp atburði úr Íslandssögunni þá gætumvið talað um
Baskablóðskjördæmi
Náttfarakjördæmi
Njálubrennukjördæmi
Súlustaðakjördæmi
Perlubygginarkjördæmi
Ingólfskjördæmi
Svo getum við deilt um í hvaða Kjördæmi Færeyjar eru en Naddoddur kom að landi í Kjördæmi Náttfara
Baskablóðið er dregið inn í umræðuna svo Vestvirðingar geti barist fyrir einhverju, til þess að hleypa málunum upp í bál og brand.
Íslendingasögurnar úr fortíðinni og kvikmyndirnar í framtíðinni gætu sprottið úr Njálubrennu kjördæmi nema Vestmannaeyingar vildu kalla það Kanntsteina kjördæmi
Ef náttúran ætti að ráða þá gæti Náttfarakjördæmi verið Kárahnjúkakjördæmi en það umbunar nútímanum kannski óþarflega mikið.
Ég tel að perlubyggingin sé e.t.v. það merkasta í viðkomandi kjördæmi nema ef vera skyldi allt fólkið.
Ef men vilja tala um núverandi kjördæmi þá væri kannski hægt að sjá
Reykjavík norður og Reykjavík suður og
svo
Reykjavík austur og allt um kring
vissulega var Gazzi tengdur Nadda en naddi kom eins og þú bendir á úr kjördæmi Þrándar eða Sigmundar Brestissonar eins og Einhver Ben orti
Tökum upp hreppsskipan.
múla og sýslur....
þing og eyjar og hár en það er e.t.v ekki það sem maðurinn meinti, kannski var hann að tala um að það þyrfti að breyta einhverju en ég held hann vildi ekki fá að vita hvað væri.
Baggalútskjördæmi
Gestapókjördæmi
Heimavarnarliðskjördæmi
Friðargæslukjördæmi
Innpúkakjördæmi
Nýja-Félagsritakjördæmi
Ánetjunarkjördæmi
Af nógu er semsagt að taka.
Er þá búið að samþykkja þetta? hvað var ákveðið?