eða hver er uppáhalds málshátturinn hjá ykkur þessa dagana.
Í augnablikinu hallas ég mest að:
-
"Í upphafi skal endirinn skoða"
"í upphafi skal endirinn á læknirinum skoða" á þetta að vera held ég.
Oft kemur bóndi í opna Skjöldu.
(Læknirinn sjálfsagt líka, allavega dýralæknirinn)
Alveg rétt hjá þér Hlewi.
" oftar er oft kveðið þótt oft sé oft ei oftar en ekki "
ég fékk þetta í Páskegginu mínu fyrir nokkrum árum
Aldrei byrjar málsháttur á aldrei
Málsháttur handa Landbúnaðarráðherranum:
Allt skal fara saman, karl og kýr.
Finnur Jónsson gamli hefur þann eftir sjálfum Óðni, og ei lýgur Óðinn. Kannast þér við þann orðzkvið í talmáli?
Með lögum skal land byggja.
Sjaldan er flasa til fagnaðar!
(Oft er í málsháttum oft, er réttari útgáfa).
Oft býður bóndi dýralæknirinum í endirinn á opinni Skjöldu, var líka þekkt í minni sveit.
Einhver gestanna var með undirskriftina "Það var og".
Það minnir mig á minn uppáhalds samsetta málshátt:
Það var og, en það er nú það.
Letin er frumglæðir uppfinninga.
Neyðin kennir lötum manni að finna afsökun.
Sá er latastur er síðast hlær.
Oft er sjór í hafi.
Sjaldan er loftið loftlaust.
Deyr fé, deyja frændr, en helvítið hann Bjartmar Guðlaugsson ætlar aldrei að drepast.
Líklega,,,,
-
sá hlær best sem síðast hlær ( spurningin hvort það verði Bjartmar ! )
Líklega,,,,
-
sá hlær best sem síðast hlær ( spurningin hvort það verði Bjartmar ! )
Latur er hann í það minnsta. Það má hann eiga.
Ættingi kenndi mér:
Sjaldan fellur flagð undan fögru epli langt frá stakri bárunni.
hefur mér hefur stundum dottið í hug að....
Skíts er von úr rassi
Já, margur reytir hænur sínar grænar...
Sverrir Stormsker