Kúldrast ég í kolageymslu hugans,
kemst ég varla úr sporunum upp binginn.
Ef ég næði að losna úr viðjum vanans
ég vissulega myndi brosa hringinn.
Laga skyldi ljóðin hér
og leika eftir reglum.
(Hor úr nösum hér með fer)
hortitti við neglum.
Neglum saman byggjum bú
bústað okkur gerum
Yrkjum hérna útúr kú
og aðföngin heim berum.
Ber er hver að baki nema
bróður eigi
(lummur eru úr lummudeigi)
á Laugavegi.
Veginn þér ég vísa á
sem varðar drottinn.
Best er að fara beint á ská.
(Ég barði í pottinn.)
Pottaslátt og pönnuhögg
píratarnir vilja.
Frekar vil ég viskílögg
verður þú að skilja
Loks á ferli fann ég blút
Úr flösku er tappi
Hvergi á mig hvessir stút
Hvar er lappi?
Lappi er að leika sér
[logn með drunum].
Ei má gleyma, herrar, hér:
hortittunum.
Hortittunum hefur fargað
Hattarinn með vilja
(víst með fjöðrum vel er tjargað)
verður þú að skilja.
Skilnaður Skúla og Önnu
(skófirnar malaði kvörnin)
er hvílíkur hvellur með sönnu;
hvað verður nú um börnin?
Börnin verða bráðum sótt
af barnaverndarnefnd,
og sjá, þeim er í svefni rótt.
(Í sjónvarpinu er Hefnd.)
Hefnist þeim sem hentu í þá
harðri, þurri rusta sneið.
Orðu fálkans ekki ná.
(Í Evrópu er hungurs neyð].
Neyðin kennir nöktum að
nú sé best að þurrka
strax sér eftir sturtubað.
(Í stúkunni er purrka.)
Purrka er í Playstation að puðra skotum.
Út í loft við öll þeim dritum.
(Er hér rósalykt í vitum?)
Vitinn sem mér vísar leið er varla hálfur
(heyrðu, þarna er hreindýrskálfur)
hentar vel, er þannig sjálfur.
Sjálfur vil ég sitja hér og semja stöku stöku sem að stuðlum hampar.
(Stóðu hérna áðan lampar?)
Lampa átti Alladín
andi bjó í honum
(Bjarni drekkur brennivín
með berháttuðum konum.)
Konum þeim sem kunna að meta
karla heita ísnum frá
þykir eflaust gott að geta.
(Geng ég oftast beint á ská.)
Skánaði mér skitupestin.
Skrönglaðist ég út í gönguferð
(Gleðja skaltu góða prestinn
þinn). Get ég loksins étið morgunverð.