Sem nýgræðingur sem vill sanna auðkennismyndarétt sinn, vill ég endilega stofna nýjan leik.
Leikurinn er einfaldur en á sama hátt krefst visku, gáfu og góðrar kunnáttu, sem hefur lengi vel verið í offramboði hér.
Menn skulu segja eina línu úr bíómyndum, teiknuðum sem leiknum, sem eru Íslenskar, eða talsettar á Íslensku.
Næsti leikmaður skal reyna að botna línuna. Sem dæmi, ef einn leikmaður segir ,,Þungur hnífur'' fær sá leikmaður sem segir ,,Þessi hnífur, á að vera þungur'' réttinn til að nefna næstu línu. Nota skal ♪ tákn til að gefa í skin að verið sé að vitna í söng.
Skal ég hefja leikinn
♪Það besta í heimi hér,♪
Þetta virðist ekki vera lygilega vinsæll leikur. Er ekki hægt að færa hann?
Svo er þetta ekki glænýr leikur heldur.
♪Það besta í heimi hér,
er harðfiskur og smér♪
Sé það ekki rétt svar þá ætti það a.m.k. að vera rétt svar.
Verð nú að taka undir með báðum ummælum, Regína hefur rétt fyrir sér, og þótt svar Billa sé ekki rétt er þetta nú reyndar stórgott svar.
Ég misskildi leikinn, hélt að þetta væri eins og gamli leikurinn Gettu teiklínuna eða eitthvað svoleiðis.
En það var þannig hér áður að leikir voru færðir á svæðið Lygilega vinsælir leikir, ef þeir reyndust lygilega vinsælir.
Nýa leiki er betra að stofna á hinu leikjasvæðinu.
En það eru svosem allir hættir sem hafa réttindi til að færa þræði .....
Ekki hef ég þau réttindi, en skal að vísu ávallt fylgjast með skuli nokkur maður svara þessu. [/code]