Stómi von Stieglitz, þar sem fyrra nafn er fengið af samlíkingu við poka fullan af úrgangi (ég veld þá a.m.k. vonandi ekki vonbrigðum með það efni sem skvettist úr kollinum) og síðara nafn fengið úr stuðluðu heilaflugi (kallað 'brainstorm' á engilsaxneskri tungu).
Heil og sæl, öll!
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn hingað á þennan vettvang háalvarlegra umræðna.
Velkominn Stómi Horfir gaumgæfilega á nýliðann og athugar hvort hann sjái eitthvað sannleikskorn í honum
Hendir sannleikskorni í Offara
Velkominn nýliði, megi vera þín vera viðburðarrík og vandhvæðalítil.
Velkominn, Stómi, og vegni yður vel að haldast á hinum sjöfalda vegi dyggðarinnar.
Þakka góðar kveðjur kæru félagar. Blóm og kransar afþakkaðir. Einhver skortur er á sannleikskornum vegna gjaldeyrishafta.
Sértu velkominn og búðu þig undir jafnvægisdans á vegi áttfaldrar þjáningar.
Eftir rannsóknarvinnu, þar sem hringt var í fullt af fólki (gef ekki upp hversu marga, enda er ég engin rannsóknarstofnun), hef ég tekið þá ákvörðun að kenna mig ekki við saur- og þvagpoka. Það þykir ekki við hæfi.
Athugasemdir sendist til RÚV, Efstaleiti, merktar Páli Magnússyni, en afsaka ég þó þann misskilning sem þetta gæti ollið og þau mögulegu brot á siðareglum Baggalútíu sem ég frem með þessu athæfi.
Hann er ekki til. Hann tilheyrir hinum ímynduðu 'raunheimum', ég er bara svo nýfæddur að ég rugla þessu stundum saman.
Eftir rannsóknarvinnu, þar sem hringt var í fullt af fólki (gef ekki upp hversu marga, enda er ég engin rannsóknarstofnun), hef ég tekið þá ákvörðun að kenna mig ekki við saur- og þvagpoka. Það þykir ekki við hæfi.
Athugasemdir sendist til RÚV, Efstaleiti, merktar Páli Magnússyni, en afsaka ég þó þann misskilning sem þetta gæti ollið og þau mögulegu brot á siðareglum Baggalútíu sem ég frem með þessu athæfi.
Eigi þurfið þjer að hafa áhyggju af þessu, mun stærra mál svipaðar tegundar hjer á Gestapó er sú staðreynd að Glúmur er allir gestirnir hjer (*). Nú kann að vera að yður sje eigi ljóst hvað vjer eigum við en örvæntið eigi; yður mun ljóst verða með tíð og tíma hvað vjer eigum við ef yður endist aldur til hjer á þessu spjallsvæði. Er og af þessu ljóst að þjer eruð líka Glúmur þó yður sje e.t.v. eigi orðið það ljóst ennþá.
(*) Frá þessari reglu eru einstaka undarntekningar. Vjer erum t.d. bara Glúmur á þriðjudögum (og m.a.s. bara suma þriðjudaga)
Gott að vita.
Mér er spurn, hvort ég ætti að senda skilaboð um að eyða megi Stóma, svo ekki sé verið að eyða ásum og núllum í upplýsingar um hann að óþörfu? Sé ekki í fljótu bragði hvernig hægt er að fremja sjáfsvíg í stillingum...
Engar áhyggjur af því hann fer bara í skrumgleypirinn. Ég kenndi mig í pphafi við Þorskasleiki, sendi beiðni um að fá nafninu breytt og tók það bara um 5 mánuði og það var þegar Ritstjórn átti það enþá til að kíkja hér inn.
Velkominn Hertogi; hefur þú nokkuð mátt vera að því að líta við í Innflytjendahliðinu?
Velkominn Hertogi; hefur þú nokkuð mátt vera að því að líta við í Innflytjendahliðinu?
Það hefi ég nú gert, bíð spenntur eftir skoðun og mögulegri stimplun.
Vertu velkominn Hertogi.
Hér færðu þína fyrstu flengingu frá málfræðinorninni (mér) :
Eftir rannsóknarvinnu, þar sem hringt var í fullt af fólki (gef ekki upp hversu marga, enda er ég engin rannsóknarstofnun), hef ég tekið þá ákvörðun að kenna mig ekki við saur- og þvagpoka. Það þykir ekki við hæfi.
Athugasemdir sendist til RÚV, Efstaleiti, merktar Páli Magnússyni, en afsaka ég þó þann misskilning sem þetta gæti ollið og þau mögulegu brot á siðareglum Baggalútíu sem ég frem með þessu athæfi.
Maður segir ekki gæti ollið. Maður segir gæti valdið.
Sögnin er að valda: Ég veld, þú veldur, hann veldur, við völdum, þið valdið, þeir valda. Þó ég hafi valdið því að... ogsvoframvegis.
Hins vegar er þátíðin svona: Ég olli, þú ollir, hann olli. Við ollum, þið olluð, þeir ollu.
Í Enters almáttugs bænum, ekki segja þó ég hafi ollið eða gæti ollið aftur. Nokkurn tímann.
Svellur þér ef til vill hugarangur í brjósti?