Er gestum heimilt að svara fyrirspurnum hjer ? Megum vjer t.d. svara síðustu fyrirspurn (hún er frá Fergesja) í þessu innleggi með því að segja hjer að oss virðist sem nöfn rafmælisbarna á forsíðu Gestapósins sjeu birt í öfugri stafrófsröð ?
Nei. Og þetta er ekki öfug stafrófsröð. Þetta er röðin sem við heimsækjum viðkomandi rafmælisbörnun í og færum þeim misdýrar gjafir.
Hérna ertu þá Enter! Svarandi kagúldnum fyrirspurnum sem eru komnar langt yfir síðasta neysludag. Áttu ekki að vera að vinna? Þessi stefnumótun í markaðssetningu samhverfa erlendis skrifar sig ekki sjálf!
Halt þú kjafti Númi. Það er ekkert annað að gera hér á kamrinum eftir að þú sturtaðir Ennýal niður til að kanna „sambandið“ í klóakinu.
Þetta var hávísindaleg rannsókn á gerkosmískri leiðni í hólkrými. Ég geri fastlega ráð fyrir að niðurstöðurnar verði birtar í hinu virta og ritrýnda vísindatímariti Popular Cosmotic Journal of Cosmotics. Farðu svo að vinna!