Jæja, þetta er komið upp. Endilega kjósið. Vona að þetta séu boðlegir valmöguleikar.
Vjér höfum hjér með kosið!
Hvar má sjá úrslitin?
Íha, búinn að kjósa og nú skal beðið eftir partíinu, Blesi bíður spenntur!
Útkosinn! Þá er bara spurning hver vinnur! Undirbýr kosningavöku enda von á æsispennandi baráttu
Hef nýtt mér lýðræðislegann rétt minn. Ljómar upp
Búin.
Jú, ég hef kosið en ég veit ekkert hvort ég kem... En ég geri mitt besta til að reyna að koma. Er einhver staðsetning komin í sigtið?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum hjer með notað oss lýðræðislegan rjett vorn til að láta í ljós álit á tímasetningunni með tilliti til mögulegra árekstra við atburði er oss er á þessari stundu eigi ókunnugt um.

Fram hafa komið hugmyndir um að halda árshátíðina til tilbreytingar í öðrum alheimi en þeim er flestir Gestapóar eru vanir. Áhugi á því virðist þó ekki nægilega mikill til að af því verði og er það miður. Það væri nefnilega mjög fróðlegt að sjá hvernig aðrir alheimar líta út.

Það er sem sagt óvíst að ég verði hvergi eins og sums staðar endranær.
Ég mæli með sannleikanum í árshátíðarnefndina.
Það hefur enginn borið þess blæti að mæta.
Er ekki um að gera að taka fram sparikassann og kaupa sér nýja sokka fyrir þessa árshátíð. Parið sem ég á er svo gatslitið að ég get klætt mig í þá á minnst fjóra vegu.
Ja, ef stemningin er góð, má alveg búast við að ég endi ber að neðan, og þá máttu fá sokkana mína.
Ég var að kaupa pakka með 10 pörum þannig að þú þarft ekkert að skila þeim.
Svaka fínir sokkar, ekkert svaka mikið notaðir.
Hvar er kosið? Er boðið upp á akstur á kjörstað?
Noh, svo Hvæsi ætlar úr sokkunum!