Ég gæti hugsanlega komið til að taka við verðlaunum.
Ég var að reka glyrnurnar í að ég var búinn að boða komu mína í fjórfalt afmæli þetta sama kvöld. Það er því frekar litlar líkur á mætingu af minni hálfu nema þá frekar seint og þá þarf ég ekki á hreppaflutningabílnum að halda nema þá til heimferðar. Þetta er allt frekar óljóst ennþá svo að ég segi bara: Ég kem ef ég kem en annars kem ég ekki.
Raunheimaafmæli mun líka hafa áhrif á það hvort ég láti sjá mig.
Ég fer yfirum ef þið eruð að boða komu ykkar á síðustu stundu.
glottir
6 dagar í árshátíð
Ég verð ekki með í rútunni. Ég kem með strandfaraskipinu.
Er þetta ekki annars á sama stað og vanalega? Klukkan hvað á ég svo að mæta?
Verður þessi árshátíð onlæn?
Nema hvað?
Verður þessi árshátíð onlæn?
Íslenska er í hávegum höfð hér á þessum vef, slettur og annar leiðindatalsmáti óskast sendur á h**a.is
Nema eitthvað breytist, verð ég því miður að sleppa þessari ársátíð.
Lofa að mæta á næsta ári, nema eitthvað komi uppá.
Ég ætla að koma svo þið skuluð passa gaurana.....muahahahahahaha! Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hvar er þetta annars? Glottir eins og fífl
Ég var að reka glyrnurnar í að ég var búinn að boða komu mína í fjórfalt afmæli þetta sama kvöld. Það er því frekar litlar líkur á mætingu af minni hálfu nema þá frekar seint og þá þarf ég ekki á hreppaflutningabílnum að halda nema þá til heimferðar. Þetta er allt frekar óljóst ennþá svo að ég segi bara: Ég kem ef ég kem en annars kem ég ekki.
Við sjáumst þá ef þú sést í minni viðurvist.
Þar sem ég skemmti mér vel í fyrra, ráðgeri ég að sýna andlit mitt á krá einni eftir að minni vinnuskyldu er lokið,
svo fremi það verði innan skemmtanatíma kráarinnar.
Krossleggur fingur um rólegt vinnukvöld
Verður þessi árshátíð onlæn?
Íslenska er í hávegum höfð hér á þessum vef, slettur og annar leiðindatalsmáti óskast sendur á h**a.is
Hvaða nöldur, hann er með æ og alle græjer!
Ég kem að sjálfsögðu ef einhver efaðist.
Verður þessi árshátíð onlæn?
Íslenska er í hávegum höfð hér á þessum vef, slettur og annar leiðindatalsmáti óskast sendur á h**a.is
Hvaða nöldur, hann er með æ og alle græjer!
Nöldur, NÖLDUR Guðar frostrósum móðguð á gluggana
Þó ég hafi verið á fjöllum um tíma er mér ekki kunnugt um að dagskipanin hafi breyst svo gjörla hér að menn geti óáreittir og óumvandaðir laumað hér inn slanguryrðum (þrátt fyrir íslenskan staf!)
Þetta er augljóstlega danskt æ.
Hvursu margir skyldu nú ætla að mæta? Hlakkar til
Mættu nú alveg vera fleiri.