Hvert er svo eftirlætislag ykkar?
Hvað er það sem notendur eru að hlýða á í frítíma sínum?
Sjálfur set ég nafn Antonios Vivaldi og árstíðirnar hans efst.
Bach og 3ji konsertinn hans, allegro, koma síðan fast á hæla hans.
Ég syng inn á segulband og spila afturábak. Mikil skemmtun í því.
Svo hlusta ég mikið á gamlar upptökur af Alþingi þar sem búið að er bæta hressum blökku-takt í bakgrunninn.
-
Þessa dagana er Radio Rapist Wrestler með Leoncie í uppáhaldi. Ýtti því stórkostlega lagi Hvar er húfan mín út af spilunarlistanum.
Tvistar glaður afturábak út úr herberginu, rekur sig í dyrakarm og gleypir bréfaklemmuna sem hann var að jappla á.
Persónlega mæli ég með REQUIEM, MOZART hrein snild
Bethoven sónata snillingur og Tjachovsky eða og svo Kurt "dópisti" Donald Cobain, þar sem mikill hávaði skapast
er hún þá svar Kópavogsbúa við Megas og Reykjavíkurnætur
Persónlega mæli ég með REQUIEM, MOZART hrein snild
Hvað er það langt? Útgáfan sem ég komst yfir þykir mér í forlátara lagi.
Hvað hét annars óperan sem heyrðist í gömlu gevalía auglýsingunum?
Ég mæli með tónverkunum:
The Message
Shindai Lovers
Necromania
Kamasutra
We don't care
Með andlegum arftökum Mozarts og Beethoven, þeim Manfred Hübler og Sigfried Schwab.
Ég þarf ekki lengra en í titil þessa þráðar:
Ég mæli með tónlistargáfu annarra.
þetta gamla góða; Pink Floyd, Talking heads, U2 og REM
nýlegra; coldplay og travis
Ég sé að feministi hefur góðan tónlistarsmekk. Mætti ég kannski bæta við fleiri gömlum meisturum eins og YES og Jethro Tull. Þar eru sko kallar, sem geta spilað.
Hamfarir, nýjasta plata Gunnars Jökuls er afbragð í hlustun, ber með sér nýstárlegan tón níunda áratugsins og hefur hún að geyma slagara eins og "Bíllinn minn", "Kaffið mitt", "Hundurinn minn" og "Drykkjuvísur". Einnig er þetta forkunnarfagur og einkar eigulegur diskur. Þá getur stundum slæðst á grammófóninn plata Bjartmars Guðlaugsson, Í fylgd með fullorðnum en þar standa hæst lög á borð við "Týnda kynslóðin", "Týndi popparinn", "Ég er ekki alki" og "Járnkarlinn".
ég nefni bara eitt lag: "17 ára í síðri kápu" eftir Davíð Oddsson
Langi seli og skuggarnir eru nú alltaf áheyrilegir.
Er Björgvin Halldórsson þá undantekningin sem sannar regluna?
Þeir byrja ekki á B og geta því ekki verið áheyrilegir. Þetta er nú bara nokkuð sem menn eiga að vita.
Hrossabrestur gerði sér bara ekki grein fyrir þessu, biðst forláts!
Hrossabrestur sýpur duglega á jólaglögginu, skellir svo í góm og dregur augað í púng