...
Fær allgera falleinkunn hjá mér a.m.k. hellir afganginum í vaskinn
Ég veit ekki alveg hvað það er... en það er eitthvað sem stenst ekki alveg... Klórar sér í höfðinu
Enda hélt ég fyrir augun.
Næst skaltu setja plasttappa á flöskuna og bjóða mér í heimsókn...
Annars er einn bjór í ísskápnum mínum... hann heitir Slots pilsner... hvernig ætli hann sé á bragðið, ég þori ekki að prófa...
Jæja gott fólk, í dag fagnaði ég vel heppnuðum árangri í prófi með því að skella mér í ríkið (nema hvað) og kaupa mér jólabjórinn frá Víking. Ég á ágætis minningar frá honum frá fyrri jólum...sem og óminningar.
opnar og sýpur
Fyrirtaks bjór. Kemur mér á óvart hvað hann er einhvern veginn mjúkur á tungunni þó hann sé beiskur lagerbjór. Nokkuð skrýtið. Ég finn hins vegar ekki þetta meinta karamellubragð sem um ræðir á miðanum. Hann mætti e.t.v. vera bragðmeiri en er þó hinn ágætasti bjór.
Annars er einn bjór í ísskápnum mínum... hann heitir Slots pilsner... hvernig ætli hann sé á bragðið, ég þori ekki að prófa...
Slots bragðast eins og beiskt ristað brauð. Hann er ágætis Hróarskeldubjór, en ekkert sem maður sækist sérstaklega eftir.
Ég má till með að afvegaleiða þennan þráð ögn. Þennig er nefninlega mál með vexti að ég fjárfesti í flösku af jólaákavíti Álaborgar fyrr í dag og stalst til að bragða ögn núna áðan.
Ákavítið er glært, ekki sérstaklega lyktsterkt (léttur kúmeinkeimur í kringum flöskuna) og það er 47%. Ákavítið logar uppí manní smástund styrkleikans vegna, en svo dempast það og kúmeinið kemst að. Svo rennur það út í mildu eftirbragði. Afar vel heppnuð flugeldasýning hjá Álaborgarbruggmeisturum!
Álaborgs ákvavíti er afbragðs drykkur, alveg sammála. Einu sinni þó fengum við eina flösku af þessum ágætum drykk í álenskum gámaskipi á eyrinni í Helsinki, og þar sem hinir úr genginu fóru heim til sin, vorum við Puurunen nokkurn tveir eftir með einn lítra frá Álaborg og var um miðja nótt. Stundum minnir líf manns biómyndum Aka Kaurismäki...
Auk þess stafa af honum örlítil óþægindi í tönnum, [o.s.frv.].
Tannín?
Þetta fékk mig til að velta þessu fyrir mér - Hvernig er það, eru tannín líka í bjór, eða bara í vínum? Eru tannín þá kannski ein af bragðþáttunum í bjór?
Það er ég alveg viss um, að engin tannín eru í bjór.
Það er ég alveg viss um, að engin tannín eru í bjór.
Hah! Günther hefur rangt fyrir sér!
Ég leyfi mér að vitna í Víkipeðju:
In addition to the alpha acids extracted from hops to provide bitterness in beer, tannins are also present. In most cases, the presence of tannins is considered a flaw. However, in some styles the presence of this astringency is acceptable or even desired, as, for example, in a Flanders red ale.
Ég er að drekka bjór sem heitir Freyja. Hann er vondur.
Ég er að drekka bjór sem heitir Freyja. Hann er vondur.
Það hefði ég nú getað sagt þér!
Er það ekki bjórinn með appelsínu-/ávaxtabragðinu?
Ég var annars að smakka bjór sem heitir október.
Verst að hann skuli vera árstíðabundinn
Muna: Kaupa birgðir af honum á mánudaginn!
Bjór með ávaxtabragði? Allt virðist nú vera til. Enn sem komið er höfum vér eigi bragðað bjór öðruvísi en kjötbragð sé af.
Ætli sé nú ekki eðlilegast að það sé trjábragð.
Versti bjór sem ég hef smakkað heitir Lava. Mér til allnokkurrar ánægju er glæpafyrirtækið, sem reyndi að eitra fyrir mig með framleiðslu á þessum hrábjóði, komið á hausinn og megi það aldrei þrífast. Bölvar Lava í svartkol og salt
Minn uppáhalds bjór til hvursdagsneyslu er hins vegar Kaldi frá tékkanum fyrir norðan. Það er nokk sama hvaða tegund af Kalda, það er allt eðal stöff. Ljómar upp og bíður bjór á línuna
En þegar ég er staddur í Baggalútíu drekk ég bara eðalblút af krana hjá Galdara á Kaffi Blút.
xT