Þar sem ég var hálfpartinn farinn að ræna þræðinum "Frjáls leikur Ívars: Hvað ertu að drekka?" þá ákvað ég að stofna hér bjórhorn fyrir bjóráhugamenn og konur. Hér geta gestapóar rætt mismunandi tegundir, nýjar sem gamlar og komið með ráðleggingar eða viðvaranir.
Nú var jólabjórinn að koma í ríkið og ég fór áðan og keypti mér smakk.
Fyrst erum við með jólabjór Jökuls. Ég hef smakkað Jökul áður og þótti ekki mikið til, en vonandi hefur jólabruggið heppnast betur?
fær sér nokkra sopa
Úff, þetta er eins og munnskol. Hverjum dettur í hug að framleiða þetta rusl? Það er eins og einhver hafi hellt tannkremi og appelsínusafa út í bjór. Hann er 6%, frekar dökkur með grófu stout bragði sem bragðast eins og einhver ógeðsdrykkur. Fær allgera falleinkunn hjá mér a.m.k. hellir afganginum í vaskinn
Er ekki réttara að nefna þráðinn Bjórhorn hvurslagsar?
Neinei, hvurslags beygist auðvitað svipað og Selfoss.
Ég er ekki kresin á bjór, enda ekki hægt, hann er yfirleitt ekkert sérstakur. Ef ég finn bjórtegund sem mér líkar þá er gefið mál að næst finnst mér hann vondur.
Best að taka þátt í þessum leik og kaupa nokkrar bjórtegundir þegar ég fer næst í kaupstað.
Endilega.
En þá er það seinni bjór kvöldsins, sem er Jólakaldi. 5.4%, nokkuð dökkur lager með þykkri froðu. Þeim á Árskógssandi hefur nú sjaldnast brugðist bogalistin þegar að bjórbruggun kemur.
dreypir á
Þessi er prýðilegur. Kalda-bragðið kunnuglega kemur fyrir, en það er enginn "kraftur" eða rammleiki sem maður finnur oft í jólabjórum. Mátulega sætur en nokkuð bragðdaufur. Ágætasti bjór fyrir sitt leyti en þau fyrir norðan hafa byggt upp ákveðinn standard sem þessi nær e.t.v. ekki alveg fyllilega að standa undir. Mæli þó með honum.
Langréttast af öllu væri að hætta að tala um nagdýr og nefna þráðinn " Blúthorn Hvulla" eða eitthvað svoleiðis.
Er ekki réttara að nefna þráðinn Bjórhorn hvurslagsar?
Þvi má ekki gleyma að mitt kjánalega nafn er í rauninni í eignarfalli, eða a.m.k. nokkurs konar afleidd beyging (e.t.v. getur Hlebbi frætt okkur nánar um þetta). Það væri því fulllangt gengið að bæta öðru við.
Langréttast af öllu væri að hætta að tala um nagdýr og nefna þráðinn " Blúthorn Hvulla" eða eitthvað svoleiðis.
Aaa, hinn síferski brandari úr dýraríkinu.
Mér áskotnaðist bjór um daginn (verðlaun fyrir að þekkja aðrar tegundir bjórs) og leist ákaflega illa á hann til að byrja með, enda heitir hann Organic Honey Dew. En hann kom ákaflega skemmtilega á óvart, sér í lagi hversu gott hunangseftirbragðið var. Ég hugsa samt að ég myndi ekki drekka nema í mesta lagi 2 svona í einu, mér segir svo hugur að maður verði fljótt leiður á honum.
Er ekki réttara að nefna þráðinn Bjórhorn hvurslagsar?
Þvi má ekki gleyma að mitt kjánalega nafn er í rauninni í eignarfalli, eða a.m.k. nokkurs konar afleidd beyging (e.t.v. getur Hlebbi frætt okkur nánar um þetta). Það væri því fulllangt gengið að bæta öðru við.
Rétt. Hverslag. Eða hvert lag.
Ætli ég neyðist ekki til að fara í ríkið við fyrsta tækifæri til að geta orðið gjaldgengur hér. Allt í þágu vísindanna. reynir að muna hvar diplóman úr bruggskóla Busch Gardens er
Ég var í þremennings-samsæti í gærkvöldi, og í glösum okkar var m.a. bjórinn Baltíka nr. 3 í 1,5 lítra plastflösku. Reyndar var samdrykkjan svo leiðinleg, að ég lét mig hverfa eftir tvö glös. En þau minntu mig á hvert álit ég hef lengi haft á þessum bjór.
Dómur: Kemur flatur beint úr flöskunni, froðan óspennandi, og bragðið ekkert spes. Ef þenja á bogann, þá virðist uppskriftin að þessum drykk vera nokkurnvegin svona: Takið sæmilegan bjór og látið standa í tvær vikur. Bætið síðan þvottaefni útí.
Ég mæli semsagt ekki með honum, þó að vel sé hægt að leggja hann sér til munns ef ætlunin er ekki að sælkerast.
Ég er alltof öguð og góð kisa til að sulla í bjór á virkum dögum. Ég læt mér nægja græna óminnisálfinn og kardó. Ljómar upp
Er ekki réttara að nefna þráðinn Bjórhorn hvurslagsar?
Eða Hvurslags bjórhorn!?
Ertu að fara að hefja loðdýrarækt eða kominn með undirverktaka við stíflugerð?
Klórar sér í höfðinu
Ég smakkaði Malt jólabjórinn frá Egills í gær, ég fékk mér annan. Þeir sem þekkja mig betur vita að það eru meðmæli þar sem yfirleitt næ ég ekki að koma niður nema 1/2 bjór. (Nema hann sé heilsteitktur með kartöflum og smjörsteiktum sveppum.)
Jæja. Ég var að drekka súkkulaðibjór sem heitir Young's Double Chocolate Stout sem var alveg fínn þegar maður drekkur hann með súkkulaðiköku og rjóma og berjum og allskonar dóti sem er gott. En um leið og það er búið er súkkulaðibjórinn ekki lengur góður. Svo já.. endilega finnið ykkur eitthvað annað en súkkulaðibjór með jólasmákökunum!
Mér áskotnaðist bjór um daginn (verðlaun fyrir að þekkja aðrar tegundir bjórs) og leist ákaflega illa á hann til að byrja með, enda heitir hann Organic Honey Dew. En hann kom ákaflega skemmtilega á óvart, sér í lagi hversu gott hunangseftirbragðið var. Ég hugsa samt að ég myndi ekki drekka nema í mesta lagi 2 svona í einu, mér segir svo hugur að maður verði fljótt leiður á honum.
Einn af mínum eftirlætis furðubjórum.