Klórar sér í höfðinu
Eru aðrir hér þessa stundina?
Kannski var ég bara að tala við raddirnar í höfðinu á mér.. Og ég er nokkuð viss um að einhver sé að laumupúkast hérna.
Kannski himnadraugurinn sjálfur þá? Hann er kannski að gæta að því hvort við séum ekki örugglega að fasta eins og vera ber í dag.
KnúZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Klórar sér í höfðinu
Hvaða viðbjóðslegu mynd ertu eiginlega komin með, hin kona?
Hún er ekki einu sinni blá!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mér sem var farið að lítast vel á forsetafrúna.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Strákar þó
KnúZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Það tilkynnist hjer með opinberlega að þjer gleymduð að telja upp þá Gestapóa sem þjer voruð þarna að knúsa.
En hún sagðist ekki vera að knúsa neinn. Heldur varpaði hún fram orðinu "knúzzzzzzzzzz".. sem er vel þekkt stríðsöskur óvina ríkisins. Það er einmitt haft keimlíkt hinu ljúfa orði "knús" til þess að villa um fyrir saklausum gestapóum.
Hrökklast afturábak og hrasar við á sjerlega heppilegan hátt - óvart beint ofan í neðanjarðarbyrgi til varnar óvinum ríkisins
Ljómar upp
Rekur upp stríðsöskur á móti
GRUPPEKNUS!
Því miður sjáum vjer oss eigi kleift að taka þátt í gruppeknúsi hjer sökum hættu á þátttöku óvina ríkisins í því, sbr. ábendingar hjer að ofan um að hin konan kunni að teljast til þeirra. Það myndi jafnframt hugsanlega skýra þau ósamhverfu vensl er í því felast að hún titlar sig ástkonu vora en vjer könnumst eigi við slíkt. Samhverf svoleiðis vensl eru nefnilega óhugsandi komi óvinir ríkisins þar eitthvað við sögu.
Þínir allra bestu vinir gætu reynst verstu óvinir. En óttist eigi herra forseti. ÉG skal vernda þig. Daddarara.... Mætir á svæðið í ofurhetjubúningi og hnyklar vöðvana
Veltir fyrir sér hver þessi bleiki ostaskeri í spandexdulargervi geti mögulega verið
Þínir allra bestu vinir gætu reynst verstu óvinir. En óttist eigi herra forseti. ÉG skal vernda þig. Daddarara.... Mætir á svæðið í ofurhetjubúningi og hnyklar vöðvana
Ljómar upp
Afar mikilvægt er einnig að komast að því hvort hin konan telst til óvina ríkisins eður ei. Sje um að ræða dulargervi þekkts aðila er hægt að varpa fram ýmsum misjafnlega líklegum tilgátum um hver kunni þar að vera á ferðinni Starir þegjandi út í loftið. Svo gæti eins og áður hefur verið rætt einnig verið um að ræða alvöru nýliða þó sitthvað bendi til að svo sje ekki.
Það tilkynnist hér með opinberlega að Steipustöðin hefur opnað bráðnauðsynlega spæjaradeild og tekur við umsóknum.
Umsækendur skulu hafa lokið við að kynna sér allar sögur um Sérlák Hólmars; eiga sitt eigið stækkunargler og köflóttan hatt; hafa víðtækan skilning á hvað flokkast undir óvini ríkisins og kunna steppdans.
Drífur í að stofna sementsverksmiðju svo steypustöðin verði almennilega starfhæf
Til hvers þurfa spæjararnir að kunna steppdans ? Klórar sjer í höfðinu
Og ætli hinni konunni hafi kannski verið rænt af óvinum ríkisins ? Hún hefur ei sjest í 1-2 daga Verður óviss um hvort hugsanlegt rán sje ástæða til að ljóma upp eða bresta í óstöðvandi grát.