Nú ertu bara að reyna að afvegaleiða umræðuna, Vlad. Ef við værum í mafíuleik myndi ég kjósa þig.
Eyddi óviðeigandi innleggi.Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Nú ertu bara að reyna að afvegaleiða umræðuna, Vlad. Ef við værum í mafíuleik myndi ég kjósa þig.
En við erum í mafíuleik og þjer m.a.s. stjórnið honum. Hann er að vísu í öðrum þræði Kýs Þarfagreini fyrir að vera í mafíuleik í vitlausum þræði.
Svo teljum vjer oss eigi vera að afvegaleiða umræðuna.
Glottir eins og fífl
Jæja, til að svara þessu efnislega finnst mér mjög ólíklegt að Hin konan sé alveg ný hér - hún ber þess of mörg merki að vera sýruspaugari sem er hér mörgum hnútum kunnugur.
Ég styð þessa fullyrðingu og kýs að hin konan verði afhjúpuð, flengd og hugsanlega hengd.
Glottir eins og fífl
Jæja, til að svara þessu efnislega finnst mér mjög ólíklegt að Hin konan sé alveg ný hér - hún ber þess of mörg merki að vera sýruspaugari sem er hér mörgum hnútum kunnugur.
Rjett er það. Þetta gæti auðvitað verið nýliði sem hefur kynnt sjer Gestapóið sjerlega vandlega en það sem þjer nefnið teljum vjer þó líklegra. Það breytir því ekki að þetta er lengsti, sjerstæðasti og skemmtilegasti nýliðamóttökuþráður er lengi hefur sjest og því eigi ástæða til að hætta þessari nýliðamóttöku strax vegna einhvers svona smáatriðis Glottir eins og fífl.
Ég styð þetta líka.. Ég styð svo mikið þessa dagana að ég ætti kannski að gerast stuðningsfulltrúi.
Ég hélt að stuðningsfulltrúi væri sá sem er ölvaður á veitingastaðnum Nings og hefur því fulla trú á að þar ríki stuð.
Nei, Sigfús sjer um það.
Ah já - svona getur einn stafur skipt öllu máli.
Einn stakur stafur getur breytt öllu. Sérstaklega ef maður er haltur eða á erfitt með gang.
Stafsetning skiptir líka máli - ef fólk setur frá sér stafinn í einhverju kæruleysi getur það hæglega gleymt hvert það setti hann.
Einkum og sér í lagi í þeim tilfellum þegar lélega göngulagið stafar af háum aldri. Þá eru líkur á elliglöpum og minnisleysi.
Já, þetta fólk er auðvitað frá þeim tíma þegar 640K þótti nóg fyrir alla. Flissar afskaplega njarðarlega
Roðnar
Nei nei, ég er nú bara hann Þarfi.