Ég skal vera konan sem allar konur ættu að miða sig við... og grenja svo yfir því að geta aldrei nokkurntíman staðið mér jafnfætis. Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Jafnfætis í plani eða hæð ? Glottir eins og fífl
Skimar upp þráðinn
Ég sé að ég hef sjálfur fundið upp orðið 'aðalkonan' yfir þetta fyrirbæri. Ég þarf að hlusta betur á sjálfan mig ...
Nei í guðana bænum ekki fara að hlusta á sjálfan þig, hvorki nú né síðar meir. Það er bara uppskrift að vandræðum.
En ef ég hlusta ekki þegar ég tala við sjálfan mig er hætt við að ég móðgist. Kannski ég fari þá bara aftur út í að þykjast hlusta en láta allt fara inn um annað eyrað og út um hitt.
En ef þjer hlustið alltaf gætuð þjer orðið pirraðir á þeim hluta yðar sem talar við yður sjálfan ef sá hluti talar fram úr hófi mikið og gert þar með þann hluta pirraðan með neikvæðum viðbrögðum við endalausu mali og þar með verið komnir með tvöfaldan skammt af pirringi í stað þess að einungis helmingur yðar sje pirraður Klórar sjer í höfðinu.
En að upphaflegu efni þráðarins: Nýliði þessi hefur ekkert látið sjá sig eftir þær örfáu mínútur er hann var inni fyrir rúmum sólarhring. Teljum vjer þó enga ástæðu til annars en að halda umræðum þessum áfram.
Hvaða hluta ertu að tala um Vlad? Ég og ég erum tveir mismunandi menn sko.
Svarar með einhverju afskaplega hnyttnu
Heldur þræðinum (gangandi)
Tekur þráðinn og vindur hann upp í hnykil og byrjar að prjóna þykka peysu.
prjónar sokka í stíl
Mátar peysuna
Fjandinn of ermastutt
Hirðir sokkana
Einmitt það sem mig vantar til að fullkomna safnið mitt!
Er hún hin horfin?
Hún hefur fundið til minnimáttarkenndar og flúið.
Enda með lítinn upphafsstaf í nafni sínu og myndalaus api í þokkabót. Það tvennt og sér er alveg nógu viðkvæmt upp á sjálfstraustið, þó viðkomandi sé ekki ógnað af fagurbleikum ostaskera að sperra vöðvana.
Hún hefur fundið til minnimáttarkenndar og flúið.
Hún ? Er það þá þessi ?:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=1961
Það er a.m.k. afar grunsamlegt að það eru nær 40 ár síðan hún sást hjer síðast.
Hún hefur fundið til minnimáttarkenndar og flúið.
Hún ? Er það þá þessi ?:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=1961
Það er a.m.k. afar grunsamlegt að það eru nær 40 ár síðan hún sást hjer síðast.
Þessi hefur klárlega flúið aftur í tímann!
Meira hvað við getum verið vond við nýliða ...
P.S. Stal hún þá ekki tímavélinni?
P.S. Stal hún þá ekki tímavélinni?
Hrökklast afturábak í tíma og hrasar aftur til 1970
Þetta er skelfilegt ef rjett er.
Jafnar sig aðeins
Þetta þarf samt ei endilega að vera. Þetta gæti hinsvegar bent til að einhverjir af alræmdum tímavjelarþjófum Gestapósins (t.d. EGEN) hafi hitt hana árið 1970.