Sæl núrgis og margfaldlega velkomin.
Kanntu að yrkja, malla kakó, þurrka Færeyinga eða skenkja blút. Það er nefnilega orðinn allnokkur hörgull á hæfileikafólki í þessi störf og verulegrar nýliðunar þörf.
Svo er þátttaka í hernaðar- og leyniþjónustuaðgerðum gegn óvinum baggalútíska heimsveldisins alltaf vel þegin Veifar listanum yfir óvini ríkisins því til sönnunar (sem reyndar gengur erfiðlega vegna þess hve listinn er stór, langur og þar af leiðandi þungur)
Hæ, Núrgis.
Vertu velkomin.
Þiggur svossum eins og eitt stykki kjötsúpu
Ertu góður í skotbolta?
Ertu góður í skotbolta?
Kyn nýliðans og/eða nafns nýliðans er reyndar nokkuð á reiki og kann að ráðast af hvort nafnið er lesið afturábak eða áfram. Því teljum vjer rjettara að segja góður/góð/gott þar til þessi mál skýrast og/eða núrgis lætur í ljós formlegar óskir um hvernig ávarpa beri hann/hana/það.
Ó, ég hélt það væri: Hann Núberg..
Núrgis er augljóslega Sigrún, bara aftur á bak, og þar af leiðandi er ekki óvitlaust að nota kvenkynns fornöfn frekar en karlkyns, allaveg þar til að maður er leiðréttur.
Aha.. þannig að þú heitir í raun Rainim og Vladimir Fuckov heitir Vokcuf Rimidalv.
Já... það er nauðsyn að bæta við nýliðum hérna þar sem stundum vil kvarnast úr kjarnanum sem hér er. Vertu velkomin nýliði.
Ha ha, ég hlæ. Sagði frú Vaíla Veinólínó. En ég hló ekki lengi afþví ég ætlaði að gera íslenskar gæsalappir og það virkaði ekki.
Til að svara flestu sem ég man hér að ofan þá er ég í fyrsta lagi bersýnilega kvenkind. Einhver hér kallar sig meykóng og þykir mér það góður titill, þó svo hann eigi eigi við mig. Ég hef hlotið nafnbótina súpertík og einhver taldi mig ömmu Satans, en ég held hann hafi talið mig sig.
Í annan stað þá man ég ekki fleiri spurningar í bili. Jú, ég kann að búa til kakó og sviðasultu. En ég kann ekki að prjóna. Ég gaf einu sinni út ljóðabók með vinkonu minni, í einu eintaki. Hún er með eintakið svo ég get því miður ekki deilt þeim kveðskap með ykkur að svo stöddu. Annars samdi ég eitt sinn kvæði handa systur minni. Það fjallaði um hafmann í húðbuxum með lifrarpylsu á hælunum.
Ég þakka góðar móttökur og vonanst til að geta lagt eitthvað bitastætt til málanna hér. Ef ekki þá sver ég mig úr félagsskapnum með skömm.
Yðar
Núrgis
Vokcuf Rimidalv er einræðisherra Króatíu og ber ekki að rugla honum saman við spegilmynd sína.
Til að gera íslenskar gæsalappir þá ýtir þú annað hvort á gæsalappatáknið sem kemur neðan við innskriftargluggann, eða skrifar g og /g í hornklofum á réttum stöðum. (Eða skrifar Alt+132 og Alt+147 ef ég man rétt.)
ég hef ánægju af áfengum veigum og köttum
Mér líst strax vel á þennan nýliða. xT
xT
Heyrðu, ég reyni Alt0147 og gæsalappa táknið en það kom bara eitthvað óútskýranlegt. En takk samt og skál.
Ja hér! Yður hefir hlotnazt mynd. Til lukku.
Velkomin núrgis. Vonandi verður þú virk og nýtur lífsins hér með okkur.