Mig dreymdi að ég væri í vinnunni .. það er alltaf jafn óskemmtilegur draumur.
Mig dreymdi að ég vaknaði og væri orðinn alltof seinn í vinnuna... vaknaði með andfælum við það en klukkan var bara 2... Þrælseðlið er alltof sterkt í mér greinilega.
Mig dreymdi að ég væri á hóteli í Kaupmannahöfn með ansi sérkennilegu samansafni af fólki sem ég þekki í kjötheimum. Svo dreymdi mig líka að rúmlega sextug tengdamóðir mín ætti tveggja ára gamalt barn og væri að hugsa um að koma með annað.
Mig dreymdi tóbak. Allir vasarnir á jakkanum mínum voru fullir af sígarettupökkum.
Mig langaði í pípuna mína hinsvegar og átti í vandræðum með að finna hana í öllu þessu sígarettuflóði.
Ferlega skrítinn draumur.
Nei nú dreymdi mig eina all verstu vitleysu sem mig nokkurn tímann hefur dreymt!
Mig dreymdi um líkkistu-kappakstur!
Og vinningshafinn var með eina tuttugu ketti í kistunni hjá sér!
Andskotans vitleysa.
Mig dreymdi hann Upprifinn. Mikið getur hann nú verið sóðalegur þegar hann er í þeim gírnum.
Mig dreymdi helvítis vekjaraklukkuna. Kom ekki dúr á auga í öllum draumnum. Var gersamlega örmagna þegar ég vaknaði.
Eitthvað bannað innan sextán.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Afmæli og hvítan kjól og stóra glerkönnu af rauðvíni sem sullaðist svo á kjólinn. Starir þegjandi út í loftið
Mig dreymdi að ég væri í rauðri kápu að keyra um óákveðna borg í bíl með öðru fólki (þar á meðal vinum mínum og ókunnugum). Hvað gæti það bent til? (Annað en hefðbundið draumráðningadót.)
Kreditkortasvindl og farsímakort... allt mjög undarlegt... já og svo dreymdi mig bók sem átti að fjalla um leynilegar kjarnorkusprengjutilraunir Bandaríkjamanna í Brasiliu á sjöunda áratugnum... Klórar sér í höfðinu
Mig dreymdi að ég væri gróft pyntaður af verum sem voru bæði "ég" og "ekki ég".
Mig dreymdi að ég væri í rauðri kápu að keyra um óákveðna borg í bíl með öðru fólki (þar á meðal vinum mínum og ókunnugum). Hvað gæti það bent til? (Annað en hefðbundið draumráðningadót.)
Rauða kápan er alla vega einhver tilvísun í Liverpool. Sennilega fyrirboði um þessa rassskellingu sem fram fór í dag. Þú líklega í Hamann treyjunni þinna krúsandi um Reykjavík fagnandi sigri á Scum júnæted.
Brad Pitt.
Ég hef áhyggjur af þessu, verð að segja það...
Eitthvað bannað innan sextán.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Værirðu til í að útskýra þetta nánar? Því það er alltaf spurning um hvort að innan sextán sé innan sextán (sbr kvikmyndir) eða innan 18, sem að ku vera lögr...ráða aldurinn. Síðast þegar ég fékk eitthvað sem var bannað innan sextán leið mér rosa vel. Pabbi hennar varð hinsvegar brjálaður.
Mig dreymdi að ég væri að heyja á Skólavörðustígnum... klórar sér í höfðinu
Ahhh... Þess vegna fann ég þennan yndælis töðuilm þegar ég gekk til vinnu í morgun...
... hér í Háabarði.
Mig dreymdi að ég væri að fara til Toronto. En þegar úr flugvélinni var komið var ég barasta í Danmörku og þar var hryllilegt fólk sem slæmar hárgreiðslur og það eina sem ég vildi gera var að komast heim aftur til viðhengisins míns. Mikið ofboðslega var ég fegin þegar ég vaknaði.