Já, ég verð að viðurkenna að ég er búinn að fá nóg af þessum nafnleysingjum sem vaða um á Aldræsunni - það er eiginlega ástæðan fyrir því að hér er ávallt best að vera.
Yðar einlægi
Skarpmon Skrumfjörð
Já, nafnleysingjar eru lúðulakar og dusilmenni!
Þetta er komið út fyrir allan þjófabálk, hvernig nafnlausir hugleysingjar vega úr launsátri. Mun betra er að ganga beint til verks og kljúfa menn í herðar niður svo þeir sjái til.
Hvað er Aldræsunni?
Net=dræsa, Aldræsan=Internet
Flautaþyrlar! Vindbelgir! Froðusnakkar.
Nákvæmlega!
Ég er Megas.
Það er enginn Megas í þjóðskrá! Nafnleysingi!
Nær í kyndla og heykvíslar og útdeilir
Vjer erum ekki fyllilega sammála umræðum hjer um nafnleysi. Hið raunverulega vandamál er nefnilega ekki nafnleysi því allir verða að gefa upp eitthvert nafn, sbr. að " " er t.d. ekki leyfilegt nafn hjer á Gestapó. Vandamálið er fólk sem villir á sjer heimildir á netinu með hinum fáránlegustu dulnefnum. Sjálfir höfum vjer aldrei gert slíkt og höfum hjer forláta vottorð upp á að vjer heitum og höfum ávallt (nema fyrstu dagana eftir fæðingu) heitað Vladimir Vasilievich Fuckov Veifar skjölum í sjöriti máli sínu til staðfestingar.
Sem betur fer virðist fremur lítið hafa verið um að gestir hjer villi á sjer heimildir. Kann það að staðfesta getgátur um að skítkast og leiðindi eigi sjer aðallega stað þar sem slíkt er gert í stórum stíl því fremur lítið hefur einmitt verið um skítkast og leiðindi hjer.
Þó grunum vjer fáeina gesti hjer um að villa á sjer heimildir, t.d. er augljóst að óvinir ríkisins gera slíkt í stórum stíl.
Kannski er vandinn sá að nafnleysingjarnir eru að skeyta skapi sínu á öllu almennilegu fólki með nafn af því þeir eru ósáttir og afbrýðisamir vegna nafnanna. Það gæti verið lausn að gefa þeim nöfn. Ég tel það til dæmis ekkert eftir mér að gefa nöfn sé eftir því óskað. Það skal þó tekið fram að ég gef ekki mitt nafn.
Ég vil benda á að þeim sem ekki hefur verið treyst fyrir nafni sem hefst á stórum staf (eins og lög gera ráð fyrir hér í Baggalútíu) er ekki treystandi í viðkvæmri umræðu sem þessari. Lítur mjög alvarlegu hornauga á krossgötu
Þetta eru lítilmenni! Þyggur heykvísl og kyndil frá Þarfa
Ég var nafnlaus þar til ég komst á táningsárin, þá stal ég nafni af afa mínum sem og úr útdauðu erlendu tungumáli. Þannig að það er von til að fólk sem er hingað til nafnlaust geti síðar meir leiðrétt þann persónugalla.
Skítkast, leiðindi? Klórar sér í höfðinu
Grípur heykvísl og ræðst á garðann þar sem hann er lægstur
Skítkast, leiðindi? Klórar sér í höfðinu
Hrökklast afturábak og hrasar við
Eruð þjer með þessum orðum að gefa í skyn að hjer sjeu fleiri gestir undir dulnefnum en hingað til hefur verið talið ? Heitið þjer kannski eitthvað annað en Upprifinn ? Hrökklast vegna þessa ótrúlega möguleika aftur afturábak og hrasar við
Hva? Eiga allar þessar hótanir um líflát á vefnum að verða að veruleika? Nafnleysi bjargar mannslífum.
Hva? Eiga allar þessar hótanir um líflát á vefnum að verða að veruleika? Nafnleysi bjargar mannslífum.
APi!