Í dag heitir þetta trúarbragðafræði. Og þar má ekki kenna neitt sem er andstætt skoðunum einhvers annars,..... um eitthvað!
Rétt er það. Þetta er eins og Grýta ætti að kenna Framsóknarfræði.
Já en..... guðfræðin dekkar alla trúabragðafræðin. Öll trúrabrögð hafa sinn guð eða sína guði. Ljómar upp en er samt enn móðguð
Það er enginn guð til. Bara eitthvað þjóðsögurugl sem við mennirnir höfum skapað til að stjórna lýðnum.
Því er ekki hægt að kenna guðfræði... Bara trúarbragðafræði.
Gæti ég fengið einn ís með trúarbragði? glottir eins og fífl
Gefur Ívari ís með framsóknardýfu Vessgú!
hefur ekkert til málanna að leggja enda hvorki framsóknarkona né ofsatrúargæra
Pant kenna heimilisfræði kemur bruggtækjunum haganlega fyrir
Hvar er skólastjórinn? Er ekki búið að ráða í helstu stöður svo kennsla geti hafist?
Hvaða ekkisens asi er á þér Dordingull? Skrifræðið þarf sinn tíma til að melta umsóknirnar!
Það er mikilvægt að börnin verði laminn reglulega í skólanum. Annars er þetta enginn menntun.
Gengur hæverskum skrefum inn í skólastofuna, sest í fremstu röð og bíður eftir kennaranum
Hvað verður kennt í dag? Ég er orðinn 6 ára og krefst þess að fá kennslu!
Það er hér einn gamall en nettur sem mun kenna þér. Felur teiknibólur í kennarastólnum og sest aftast
Ekki nema sex ára og ert samt aldursforseti allrar Baggalútíu. Það kalla ég nú afrek, Hallur Gé!
Ræskir sig hátt og snjallt
Jæja. Nú er skrifræðismaskínan búin að tyggja allflestar umsóknir og melta þær vel og vandlega, bæði þær umsóknir sem bárust og þær sem hefðu átt að berast. Niðurstaðan er þessi:
Goggurinn - Skólastjóri
Grýta - Aðstoðarskólastjóri
Vímus - Forvarnarfulltrúi
Dordingull - Húsvörður og eftirsetuyfirmaður
Hvæsi - Yfirkokkur
Kennslustöður eru svohljóðandi:
Regína - Tungumála- og málnotkunarkennari
Ívar Sívertsen - Efnafræðikennari með áherslu á verklega kennslu Bendir honum hvar hann megi hafa brugggræjurnar
Villimey - Líffræðikennari
Grýta - Samfélagsfræðikennari
Goggurinn - Stærðfræðikennari
Réttur áskilinn til fyrirvaralausra breytinga.
Já börnin mín, ég skal sko sjá um alla líffræðikennslu. Ljómar upp
Heyrðu mig Goggur! Ljómar upp Fær Enter trúarbragðakennsluna?
Hvernig stendur annars á því að flestir eða allir kennararnir hjer eru yngri en nemendurnir ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Innritar sig enda nýlega orðinn 6 ára