Nú sé ég að Baggalútur er kominn í sumarfrí en ekki búið að loka Gestapó. Ætli það gerist samt ekki eftir örskamma stund? Kannski verður þetta síðasta innlegg fyrir lokun.
Ég ætla að verða síðastur þetta árið. Horfir stíft á nærstadda
Það gerðist 17. júní í fyrra. Brestur í óstöðvandi grát
Hah... er komið sumar... Leggst undir feld
Neibb, hér er miður vetur. Suðurhvelast fram eftir sumri
Bölvar
Bölvar
Ragnar
Bölvar
Ragnar
Óskar
Bölvar
Ragnar
Óskar
Guðmundur?
Þeir þora ekki að loka athvarfinu - þá sleppa allir vitleysingarnir út!
ég held að þessir vesalingar sem halda til hérna séu nú varla til stórræðana þannig að ég veit ekki hverju er að þora.
Starir þegjandi á Finngálknið
Var þess vegna svona vond lykt eftir sumarið?
Skilur eftir dall handa Offa djust in keis.
Obbobbobb. xT
Ég ætla að hlaupa frjáls í sumar allavega. Það má ekki loka mig inni.
En mér þykir nú hart ef það á að skella í lás án þess að búið sé að krýna nýjan heimsmeistara í teningakasti. Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þarf þess, er hann ekki þegar krýndur?
Eigi munum vjer hvort Gestapóinu var lokað síðar en öðrum hlutum Baggalúts í fyrra (líklega þó ekki). Hitt munum vjer að Gestapó var eigi lokað sumarið 2004 þó öðrum hlutum Baggalúts væri lokað Ljómar upp.