Hvaða hvaða. Eins og Gestapóið deyji ef ég hef hægt um mig í nokkra mánuði?
Hugsar málið Ah, leyniefnisskortur. Það gæti verið vandamálið.
Dæsir mæðulega og mallar kóbaltbætt kakó með leyniefni ofan í mannskapinn
Rennur strax á lyktina (3 mínútur telst hjer eiginlega vera strax)
Ljómar upp
Kakó!
Hellir spritti á Zetorinn sem hrekkur síðan í gang án þess að þurfi að ýta
Rjómi klár eftir smá !
Ljómar upp
Kakó!
Hellir spritti á Zetorinn sem hrekkur síðan í gang án þess að þurfi að ýta
Rjómi klár eftir smá !
Sjer upphafið á innleggi Hvæsa og man eftir einu sem gleymdist
Vjer runnum svo fljótt á lyktina að vjer gleymdum þessu:
Dregur upp plútóníumperu. Ljómar upp
Hrökklast mjög langt aftur á bak og hrasar all harkalega við
Gleymdir þú að ljóma upp ?
Eru óvinir ríkisins að komast nær þér ?
Hjálpi mér! Leyniefnisskorturinn er alvarlegri en ég hélt í fyrstu!
Flýtir sér að klára kakómallið og hellir sjóðheitu kakói í bolla handa forsetanum
Sýpur á fagurkakólitum drykk
Það hressir Hexiukakóið Ljómar upp
Skál !
Heldur á tómum bolla og horfir vongóð á Hexíu.
Setur sykurpúða í alla bolla og heldur súgs bolla fram með hinum og sleikir út um
Smellir smá áfengu í bollann sinn
Sp.: Hvað er eiginlega málið?
Sv.: Stöðnun.
Sp.: Hvað er eiginlega málið?
Sv.: Stöðnun.
Þú verður að passa gnýstuðlana...
Rankar við sér Æ afsakið, ég er farin að frjósa svona á gamals aldri.
Hellir kakói í bollann hans Hvæsa og bollann hennar Regínu
Ef fleiri vilja kakó þá gjörið svo vel að bjarga ykkur sjálf. Ég þarf að fara að athuga nokkra drauma til að spá fyrir um sumarlokunina.
Fattar á leiðinni í bælið að hún gleymdi að skenkja í útrétta bolla þeirra Billa og Villimeyjar. Sveiflar sprotanum syfjulega og kakóið flýgur í undarlegum boga ofan í bollana
Passar gnýstuðlana fyrir Jarma.
Spurt er: Hvert er spádómsmálið.
Spennt við svarsins bíðum.
Jarmi veit að stirðni stálið
stöðnun senn við líðum.
Annars fraus tölvan mín áðan - ég tengi því að ég fór inn á Gestapó - þetta hefur allavega ekki gerst síðan ég kom hér inn síðast.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þetta gætu verið allra fyrstu merkin um yirvofandi sumarlokun.
Náfölnar og krossleggur sig
Hrökklast aftur afturábak og hrasar við
Önnur merki um það virðast vera að sökum undarlegra áhrifa einhversstaðar frá mistókst oss að rita orðið yfirvofandi rjett í síðasta innleggi voru hjer Fölnar.