Friðargæsluliðar umræðuflokka eru eftirfarandi:
Almennt spjall: Vladimir Fuckov
Efst á baugi: Skabbi skrumari
Umvandanir, ábendingar, tilmæli: Albert Yggarz
Fyrirspurnir: Ritstjórn Baggalúts
Nýall, stjarnvísi og kóbalt: Hakuchi
Kveðist á: Barbapabbi
Þýðingar, speki og orðsnilld: salvador
Sögur, gátur, leikir og dægradvöl: Frelsishetjan
Kvartanir vegna starfa þeirra berist ritstjórn sem einkapóstur.
Þetta eru allt hálfvitar, þessir kraphausar hafa verið að ritskoða mig fram og til baka, eyðandi og jafnvel breytandi póstum, greinilega ófærir um þetta starf!!!
Þetta eru allt hálfvitar, þessir kraphausar hafa verið að ritskoða mig fram og til baka, eyðandi og jafnvel breytandi póstum, greinilega ófærir um þetta starf!!!
He, he, he, skv. þessu geta lesendur Baggalúts semsagt eigi verið vissir um hvort þjer sögðuð þetta eða hvort þjer sögðuð í raun og veru eitthvað allt annað. Þjer gætuð t.d. upphaflega hafa sagt að friðargæsluliðarnir væru allir frábærir og afar færir í starfi en einhver síðan hafa breytt því í ofanstandandi svívirðingar. MWHAHAHAHAHAHAHAH !!!
Ég alltjént sáttur, við skeggjaði minnihlutahópurinn erum með okkar fulltrúa þarna á meðal.
Já, sáttur.
Ég er skeggjaður, í versta falli órakaður, gott ef ekki bæði. Mig minnir að Salvadór sé það líka. Þannig að þú mátt vel við una við slíkt prósentuhlutfall.
Ég er nú hræddur um það, og skeggið er án vafa ofarlega á topp-tíu
listanum.
Ritskoðun! Hvað næst, bókabrennur og ofsóknir? Þetta er ekki spor í rétta átt. Það er skítalykt af þessu. Verður rauður af bræði og hendir frá sér lyklaborðinu
Nokkuð augljóst er að skeggfegurð hefur ekki verið einn af þeim kostum sem notaður var til að velja í þetta lið!
Blótar öllu í sand og ösku
Ef marka má nöfn gæsluliða hefur ritstjórn ekki hugað að janfrétti kynjanna.
Og það vekur enn spurninguna: Hví eru svo fáar konur hér meðal gesta?
Hafa þær ekkert til mála að leggja eða þjást þær allar af ritstíflu?
Konur hafa sjálfsagt ekki þá vitsmunalegu burði sem þarf til að verða friðargæsluliði.
Bara hugleiðing...
Konur hafa sjálfsagt ekki þá vitsmunalegu burði sem þarf til að verða friðargæsluliði.
Bara hugleiðing...
þegar Fúll hugleiðir á þennan hátt dettur mér í hug máltækið útlenska "so many men, so little time"
þegar Fúll hugleiðir á þennan hátt dettur mér í hug máltækið útlenska "so many men, so little time"
Já íslenskar konur hafa nú verið þekktar fyrir lauslæti, en ég sé nú ekki að það hjálpi neitt að gamna sér með öllu Heimavarnarliðinu, ætli það sé ekki nóg að hitta einn eða tvo úr ritstjórn undir fjögur augu.
þú þarna með skeggið, þú hefur eitthvað misskilið mig...óvart býst ég við. En ég átti að sjálfsögðu við feminiska uppfræðslu fyrir alla þessa karlrembdu baggalúta hérna.
þú þarna með skeggið, þú hefur eitthvað misskilið mig...óvart býst ég við. En ég átti að sjálfsögðu við feminiska uppfræðslu fyrir alla þessa karlrembdu baggalúta hérna.
Áttu þá við að karlremban sé til staðar í okkur. Þér tekst ekki einu sinni að ávarpa okkur með nafni. Karlremba væri ef við myndum segja við þig "þú þarna með brjóstin". Sem væri náttúrulega bara dónaskapur. Og þá spyr maður sig, því er það ekki dónaskapur að segja "þú þarna með skeggið". Nei, remban liggur alfarið þín megin. ... Við erum herramenn!
-
Stalíníska landgræðslu! Strax í gær helst.