Nei, Þrætubók, við viljum hafa þetta svona. Það var allt steindautt hérna þangað til þú mættir. Hættu nú þessari uppgerðarhógværð og vaddu á súðum!
Ég stend fast á að hér hljóti að vera þráðurinn sem slíkur. Enda má hverjum manni vera það ljóst að Gestapó er staður og þræðirnir staðsetningar. Orð og setningar eru svo annað mál. Slær hratt trommuriff og þykist vera voða sniðugur Svo að ef einhver var misskilningurinn þá var hann upp sprottinn vegna óhentugs orðalags.
Jarmi, það er nú lágmark að sýna mér, konunginum, smá kurteisi (t.d. að leyfa honum að mér að halda að hafi ég rétt fyrir mér) milli þess sem þú riðlast á drottiningu minni.
Ég held að drottning mín og friðill hennar misskilji eitthvað. Þegar ég segi „hér er fjallað um“ vísa ég til innleggs Þrætubókar 8sem ég var að setja út á) en ekki til þess sem ég sagði í upphafsinnleggi mínu. Þetta má hverjum manni vera ljóst og því sýnt að það var Jarmi sem var tekinn.
Réttir Jarma vaselín
Meira, Jarmi?
Regína, þú ert ekki búin að skúra höllina.
Ég skúraði í fyrra, og kústaskápinn líka! Nú er komið að þér!
Jarmi, það er nú lágmark að sýna mér, konunginum, smá kurteisi (t.d. að leyfa honum að mér að hann ég rétt fyrir mér) milli þess sem þú riðlast á drottiningu minni.
Klórar sér í höfðinu Á hverju ertu núna?
Jarmi, það er nú lágmark að sýna mér, konunginum, smá kurteisi (t.d. að leyfa honum að mér að hann ég rétt fyrir mér) milli þess sem þú riðlast á drottiningu minni.
Já, sorrí. Þetta er rétt hjá þér.
En varðandi að riðlast á drottningum þá var ég rekinn úr síðasta friðilsdjobbi sem ég hafði. Nú er ég svokallaður 'frílans' eins og þeir segja upp á enskuna.
Það er nú slæmt þegar þraetubókin er farin að valda þrætum fyrir tíunda innlegg - það var alls ekki ætlunin.
Ég ætlaði að reyna að bæta ráð mitt og koma með innlegg sem væri allt í senn fyndið, gáfulegt, hnittið en jafnframt smekklegt með mikla dýpt. En ég hætti við.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Mér þykir nú verra að það hafi tekið þig 10 innlegg...
... með þetta nafn! Starir þegjandi út í loftið og þrætir við sjálfan súg
Jæja, best að koma sér að efninu. Mogginn á þessa snilld:
Réttindalaus maður lærbraut stúlku
Nú þegar hlutirnir eru ekki alveg eins og ráðamenn vilja hafa þá, þá er best að setja 'Lög um íslenskan veruleika' (http://www.visir.is/article/20090515/LIFID01/560507781
Og það er ekki frá því að maður fari til 'Til fundar við Draumalandið' vegna skorts á skemmtilegu innihaldi í þessari grein (http://www.visir.is/article/20090515/SKODANIR/898088673)
(hlekkur uppfærður svo lesendur endi á réttri síðu)
Þetta er reyndar svolítið út fyrir efnið. Hér er fjallað um skrýtnar fyrirsagnir en ekki tvíræðar. En við getum svo sem víkkað út dagskrána ef stemming er fyrir.
Fyrri fyrirsögnin, Lög um íslenskan veruleika finnst mér uppfylla skilyrðið um tvíræðni. Tvíræðnin felst í mismunandi merkingum hugtaksins lög. Mér finnst þetta reyndar mjög fyndið og skemmtilegt og sé fyrir mér frumvarp til laga um íslenskan veruleika. Svo gætu menn jafnvel vitnað í ákvæði 2. mgr. 14. gr. veruleikalaga nr. 50/2009.
Pó er mannasættir.
Þetta hefði nú annars frekar átt að fara á þráðinn sleiktu rassgatið á síðasta gestapóa
Það eru tvær fyrirsagnir sem ég man eftir að mér þóttu skemmtilegar, og lagði nú á mig að leita að til að fara alveg rétt með.
Samkynhneigður grafinn upp
visir.is
Féll fyrir hendi eiginmanns af sama kyni
mbl.is
Það er nú slæmt þegar þraetubókin er farin að valda þrætum fyrir tíunda innlegg - það var alls ekki ætlunin.
Ég ætlaði að reyna að bæta ráð mitt og koma með innlegg sem væri allt í senn fyndið, gáfulegt, hnittið en jafnframt smekklegt með mikla dýpt. En ég hætti við.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ef þú ert að skíta út Jón Kristjánsson, þann öðling og ágætismann að öllu leyti, þá er mér að mæta þrætubókardruslan þín.
Allt sem hann segir um áróðus- og ósmekklegheita myndina Dramalandið er satt. Vildi að ég gæti troðið öllum eintökunum upp í saurgatið á Andra Snæ umhverfissóða.
Ég held að Golíat sé annaðhvort X-D eða X-B...Starir þegjandi út í loftið
Látnir sópa götur
Dagur á Akureyri um auknar vinnuskyldur slökkviliðsmanna sem þeim líkaði illa. Lesendur lásu margir annað úr þessu.
Ég man einmitt eftir "Látnir sópa götur í Hafnarfirði" (mbl.is, sirka 2000) þar sem greinarhöfundi þótti merkilegra að þeir látnu væru frá Hafnarfirði en að þeir væru steindauðir.
Það er nú slæmt þegar þraetubókin er farin að valda þrætum fyrir tíunda innlegg - það var alls ekki ætlunin.
Ég ætlaði að reyna að bæta ráð mitt og koma með innlegg sem væri allt í senn fyndið, gáfulegt, hnittið en jafnframt smekklegt með mikla dýpt. En ég hætti við.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ef þú ert að skíta út Jón Kristjánsson, þann öðling og ágætismann að öllu leyti, þá er mér að mæta þrætubókardruslan þín.
Allt sem hann segir um áróðus- og ósmekklegheita myndina Dramalandið er satt. Vildi að ég gæti troðið öllum eintökunum upp í saurgatið á Andra Snæ umhverfissóða.
Alltaf gaman þegar Raunheimar blanda sér í umræðurnar hér. Ljómar upp
Jón Kristjánsson var í besta falli óhæfur sem ráðherra.
Og ef þú ætlar að halda því fram að einhverju sé logið í Draumalandinu, þá er það stórmerkilegt því að þetta er að stórum hluta endursögn á fréttatímum undanfarinna ára.
Til dæmis gaman að heyra Lómatjarnarskvísuna segja að það sé ekkert sérstaklega fallegt landslag sem þarna muni sökkva.
Og ef þú ætlar að halda því fram að einhverju sé logið í Draumalandinu, þá er það stórmerkilegt því að þetta er að stórum hluta endursögn á fréttatímum undanfarinna ára.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Ódrepandi rottur í Bretlandi
Ætli sé verið að vísa til Gordons Brown og taglhnýtinga hans?
16 ára ökumaður endaði ofan í skurði með lögregluna á hælunum
Það verður að fara að kenna löggunni að elta ekki brotamenn í blindni... að hendast oní skurð á eftir ökufantinum er náttúrulega bara fáránlegt...Glottir eins og fífl