Hér hefur verið stofnaður þráður.
Félag Baggalútískra þráðarstofnenda.
Hvort er þetta saga, gáta, leikur eða dægradvöl? Klórar sér í höfuðstafnum
Slær á þráðinn
Tekur upp þráðinn
Hengir upp auglýsinguna sína
Hey tónlistarsjéní... veit einhver hvað lagið heitir sem bylgjan notaði sem intro í morgunútvarpið fyrir 10 árum síðan.
Veit ekki hvort þeir noti það enn...
Það er lífsnauðsynlegt að ég finni það í kvöld.
Með fyrirfram þökk,
Hvæsi.
Er það lagið: "Við bjóðum þér góóóðan daag....og gangi þér allt í hagiiinnn..allt verður gott og gaman....í dag!" hryllir sig
Já, en í byrjuninni kemur fuglasöngur og eitthvað flautuþema....
Mig minnir að það hafi verið hanagal...?
Annars veit ég ekkert með hverjum þetta lag er. Kannski engum, þetta hefur e.t.v. verið gert sérstaklega fyrir stöðina.
Er það lagið: "Við bjóðum þér góóóðan daag....og gangi þér allt í hagiiinnn..allt verður gott og gaman....í dag!" hryllir sig
Djöfull, ég var búinn að gleyma því helvíti... man ég vaknaði einu sinni upp við þetta og var í fúlu skapi í viku á eftir.