Hvað hefur breyst og hvernig? Sumt til batnaðar? Eða er allt komið á verri veg núna?
Sagan er mín sannleiksást.
Verið heiðarleg elsku frumbyggjar og segið ykkar sögu.
Þegar ég skoðaði Gestapó fyrst á almennri skoðunnarferð minni um netið jólin 2003 fannst mér þessi staður fyrst og fremst vera athvarf sérvitra snillinga. Þarna voru menn í flóknum rökræðum þar sem beitt var bæði í senn frumleika og jaðarkímnigáfu. Ekki neðanbeltis þó nema að mjög litlu leiti. Mig rámar að kveðist á þræðirnir hafi ekki verið eins öflugir og þegar ég byrjaði sjálfur að skrifa rúmu hálfu ári seinna. Þarna strax í byrjun fannst mér vera áhersla lögð á vandað íslenskt mál, jafnvel fornlegra en það er í dag.
Þetta er svona eins og mér fannst þetta vera þarna jólin 2003 þegar ég skoðaði Gestapó í fáeina daga. Ég skráði mig en skrifaði ekkert.
Ritstjórn var byrjuð þá að koma með grínfréttir en mér finnst þeim takast betur upp í dag en þá. Þeir voru einvernvegin of fáránlegir, eða þá að ég átti eftir að venjast húmornum.
Eitthvað á þessa leið: http://web.archive.org/web/20020604070218/baggalutur.is/gestabok_1.asp
Ég þekki engan þarna nema pabba sáluga.
Gestapó. Voru það ekki hersveitir eða lögregla í Þýskalandi á tímum nasista?
Eitthvað á þessa leið: http://web.archive.org/web/20020604070218/baggalutur.is/gestabok_1.asp
Ég þekki engan þarna nema pabba sáluga.
Mig minnir að þessi "ámæli" hafi verið með því mót að þú gast sent inn, en það var bara birt það sem ritstjórn þóknaðist að svara.
Gestapó. Voru það ekki hersveitir eða lögregla í Þýskalandi á tímum nasista?
Nei. Það voru Gestapo. Mjög lík orð þó.
Vjer teljum bráðnauðsynlegt að fá marktækar, endurtakanlegar, prófanlegar og óvjefengjanlegar sannanir þess að þessi þráður sje í raun og veru til áður en vjer blöndum oss í umræðu þá er hjer fer fram. Þess ber að geta að þó vjer höfum með innleggi þessu strangt til tekið blandað oss í umræðuna teljum vjer eigi að það ógildi það sem vjer áður sögðum hjer þar eð vjer gerðum það eingöngu til að losna við þann rugling er nýr þráður hefði skapað.
Gestapó. Voru það ekki hersveitir eða lögregla í Þýskalandi á tímum nasista?
Þú ert ekki bjartasta ljósið á jólatrénu eða hvað?
Jú, Hexía, ég held að það sé eitthvað til í þessu hjá honum.
Gestapó. Voru það ekki hersveitir eða lögregla í Þýskalandi á tímum nasista?
Þú ert ekki bjartasta ljósið á jólatrénu eða hvað?
Nei það er ég ekki, en mér sýnist þú vera klárasta öndin í pollinum.
Ég er farin að halda að gleymst hafi að stinga þér í samband hlebbi minn. Svo ég stafi þetta nú ofan í ykkur:
Nýliðinn virðist ekki átta sig á húmornum sem felst í því að láta gestasvæðið heita Gestapó í stað Gestabók, sem er afar klént orð verður að segjast. Og auðvitað er vísað í hið sögufræga seinniheimstyrjaldargestapó, það á ekki að þurfa að nefna það.
Fyrir mitt leyti verð ég að segja að hingað ætti enginn að eiga erindi ef viðkomandi fattar þennan húmor ekki sjálfur. Og nú er ég búin að eyðileggja það. Skamm Hexia! Slær sjálfa sig ítrekað í höfuðið með kakósleifinni

ÓóóhStarir þegjandi út í loftið
Gestabók
Jaaaaaaáááááá!!!! Þú meinar það. Ha ha ha ha ha ha ha Hlær
„I better cut down a little then.“
Starir þegjandi ofan í kakópottinn
Jamms. Þetta kemur mér í vandræði í hvert skipti sem einhver Daninn lítur yfir öxlina á mér þegar ég er hér inná.
Þér var nú líka nær að tattúa á þig gamla Eimskipslógóið...
Já. Og það bætti ekkert að ég notaði spegil til þess að sjá hvað ég var að gera.
Já og svo var ég náttúrulega í vinnu hjá Sláturfélagi Suðurlands og fæ ennþá frá þeim fréttabréfin.