Langar mig að laumast með
liðið heitir Dýrið
Lafri hefur liðsins veð
Labbi sér um stýrið
Hér er bíllinn minn: Land Rover Defender 90 árgerð 1995
... Ég var með ákveðinn bílstjóra í huga, en hann er upptekinn að eigin sögn í einhverri annarri vinnu, en þessi gerir sama gagn:
Við erum saman í liði, ég og bílstjórinn. Liðið heitir: Ríkisvarnir.
Nafn liðs og ábyrgðarmaður er; Gulli, gullni gullfiskur.
Farartækið er Skrítna skjaldbakan.
Ökumaðurinn er Mýsla meistari og hún er tilbúin í slaginn
Þar sem keppnin virðist ekki hafa farið fram enn, vil jég skrá mig og mitt lið til leiks.
Liðið heitir Rekkjunautar og mun þetta vera farartæki þessarar keppni.
Yfirmaður liðsins, ábyrgðarmaður, sem og formaður pitt nefndar er gamli koddinn minn.
Auðvitað ætla jég svo að sjá sjálfur um leguna í keppni þessari.
Ég ætla mér að keppa á þessum hérna
http://www.gothamdreamcars.com/images/Ferrari/ferrari-f430-spider-1.jpg
Kastar salti yfir öxlina á þér og segir sjö sinnum akabadabra simsalabimm.
"Idiot's guide to magic" segir mér að fara aldrei með þá þulu, er það óhætt hér?
Ég kynni til sögunnar lítið breyttan, tveggja hestafla Bösendorfer M 290
Þetta skrímsli gengur aðallega fyrir Beethoven sónötum, dönsum eftir Béla Bartók og John Cage. Pedall, kúpling og bremsa er á sínum stað.
Ökumaður flygilsins er hin velþekkti hundur Snoopy. Ökuleyfi fyrir hundinn er á leiðinni þegar tilskilin leyfi verða afgreidd. Með honum í liði eru þessir fuglar sem sjá um viðhald tækisins.
Eru þetta blindragleraugu þarna á ökumanninum? Treystirðu honum til að aka í rétta átt?
Eru þetta blindragleraugu þarna á ökumanninum? Treystirðu honum til að aka í rétta átt?
Eins og ég segi, þegar ákveðin leyfi verða í höfn varðandi bílprófið.
Ég tel það sé nokkuð ljóst að ég kem til með að sigra þessa keppni. Heilt hestafl!
Jæja, á ekkert að fara að byrja þetta ?
Ég sé að ég er langsigursælastur hérna, sem og mesti töffarinn.
Ég hugsa að keppnin fari frekar fram á sunnudaginn eða mánudag. Það væri gaman ef fleiri skráðu sig. Þegar menn eru búnir að skrá sig þarf ekkert að hugsa um það frekar. Ég mun sjá um alla vinnuna, lýsa keppninni og tilkynni sigurvegara.
Hvaða sunnudag eða mánudag? Hvenær verð ég sigurvegari?
Ætli hann hafi ekki runnið í olípoll og gleypt sjálfan sig. Ginnungagapið atarna.
Er enn opið fyrir skráningu?