Á víðattum netisins rakst ég nýlega á nokkuð sem ég hafði aldrei heyrt áður, lag með hinni fyrrverandi köntrísveit sem ber nafnið Jólalag Hafþórs. Lagið er í ballöðustíl með nokkuð skondnum texta eins og stórsveitinni er von og vísa, um Hafþór sem hatar Ésúbarnið.
Ég hef aðeins eina spurningu... Veit einhver hvenær í ósköpunum þetta lag kom út og af hverju hefur svona lítið farið fyrir því?
Ég hef eina spurningu handa þér Grágrímur: Hvar í ósköpunum fannstu þetta lag? Deyr næstum úr forvitni
Vjer munum eftir þessu og þetta leynist m.a.s. líklega einhversstaðar á ofurtölvu forsetaembættis Baggalútíu Ljómar upp. Væntanlega er hjer átt við lagið sem m.a. inniheldur textahlutann vonandi verðurðu etinn af risafló. Sje um þetta lag að ræða telst það væntanlega eigi flutt af köntrísveitinni því hún var eigi orðin til þegar lag þetta birtist fyrst.
Oss minnir að þetta hafi birst fyrir jólin 2002 hjer á Baggalúti, þ.e. jólin þegar Hafþór rændi allri ritstjórninni.
Það hlýtur síðan að vera eitthvað bogið við að sakna óvina en vjer söknum Hafþórs Hübners. Ætli ritstjórn hafi endanlega náð að sigrast á honum ?
Jamm þetta er það lag... ég fann það í "torrenti" með nokkrum íslenskum jólalögum... já ég veit það heitir að stela og já ég skammast mín fyrir það.
Haha ég man eftir þessu lagi!
Ég man ekki eftir þessu lagi! Brestur í óstöðvandi grát
Oss tókst að finna þetta (haffajol.mp3) á ofurtölvu forsetaembættisins og erum núna að hlusta á þetta Ljómar upp. Textinn er skemmtilegri en oss minnti Ljómar upp.
Ég man þetta lag. Gaular hann þetta ekki við einmana gítarundirleik?
Er huxanlegt að það geti einhver komið upp eða bent á tengil á þetta lag. Forvitni mín er vakin og vill ekki sofna á ný.
Takk fyrir þetta Grágrímur. Mig rámar núna í að hafa heyrt þetta áður. Mikið skelfing er ég orðin gleymin í seinni tíð!
Það gerir aldurinn... ég velti stundum fyrir mér hvort ég verði orðinn að gullfiski í kringum sextugt... Glottir eins og fífl
Ég heiti Haffi og ég held aldrei jól...
...
Jólasveininum er bara svo illa við mig...
Stórkostlegt jólalag.